23 febrúar 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið
Uppbygging húsnæðis á Reykjanesi
Í byrjun árs skipaði Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, framkvæmdahóp með fulltrúum innviðaráðuneytisins, forsætisráðuneytisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins til að fylgja eftir tillögum fyrri starfshóps, um möguleika á hraðri uppbyggingu húsnæðis vegna afleiðinga náttúruhamfara við Grindavík, og vinna að framgangi tillagna hans og fjármögnun þeirra.