17 janúar 2019
Afhending trúnaðarbréfs í Víetnam
Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra afhenti í gær víetnömskum stjórnvöldum trúnaðarbréf. Gunnar Snorri er sendiherra Íslands í Kína en umdæmisríki sendiráðsins í Peking eru auk þess Mongólía, Suður- og Norður Kórea, Víetnam, Kambódía, Laos og Taíland.