22 október 2015Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Fjölmennt á fundi um hagkvæmt húsnæði
Hátt í þrjú hundruð manns mættu á upphafsfund verkefnis ríkisstjórnarinnar um hagkvæmt húsnæði sem haldinn var í Reykjavík í gær undir yfirskriftinni „Vandað, hagkvæmt, hratt.“ Ráðherrar húsnæðismála, umhverfismála og iðnaðar- og nýsköpunar efndu til fundarins og var öllum helstu hagsmunaaðilum sem málið varðar boðið sérstaklega.