19 maí 2012Dómsmálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið
Nýjar ógnir og samfélagsöryggi
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra flutti erindi á ráðstefnu í St. Pétursborg í vikunni og tók þátt í hringborðsumræðum um öryggismál og nýjar ógnir. Umræðurnar spönnuðu vítt svið og var meðal annars fjallað um eftirlitsheimildir lögreglu með borgurum, útbreiðslu skipulagðrar glæpastarfsemi, efnahagslegt öryggi og tölvuöryggi, auk hryðjuverka, stríðsátaka og stórveldahagsmuna.