Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins, hugtakasafn
Hjá þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins eru þýddir lagatextar sem falla undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES).
Eitt stærsta verkefnið í þýðingarstarfinu er skilgreining nýrra hugtaka í textunum og leit að íslenskum þýðingum þessara sérfræðihugtaka (íslenskum íðorðum). Ný íðorð eru reglulega færð inn.
Flest íðorðanna tengjast sérsviðum EES-samningsins, en í safninu eru einnig íðorð úr lagamáli og stjórnsýslu, heiti milliríkjasamninga, stofnana, nefnda, ráða o.fl. Þá hefur orðasafn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands verið birt í Hugtakasafninu.
Aðgangur að safninu er öllum opinn.