Fyrir fjölmiðla

Upplýsingafulltrúar ráðuneytanna

Í hverju ráðuneyti starfar upplýsinga- eða fjölmiðlafulltrúi sem sinnir samskiptum við fjölmiðla.

Upplýsinga- og fjölmiðlafulltrúar í einstökum ráðuneytum:

Forsætisráðuneytið

Atvinnuvegaráðuneytið:

Dómsmálaráðuneytið:

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið:

Fjármála- og efnahagsráðuneytið:

Heilbrigðisráðuneytið:

Innviðaráðuneytið:

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Mennta- og barnamálaráðuneytið:

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið:

Utanríkisráðuneytið:

Upplýsingabeiðnir og upplýsingastefna

Samkvæmt upplýsingalögum á almenningur rétt á aðgangi að gögnum í vörslu stjórnvalda, þó með ákveðnum takmörkunum. Öllum er frjálst að óska eftir aðgangi að gögnum hjá ráðuneytunum. Beiðni um aðgang skal send til þess ráðuneytis sem tekið hefur eða mun taka ákvörðun í viðkomandi máli. Annars skal beiðni send til þess ráðuneytis sem ætla má að hafi gögnin í sinni vörslu. Ráðuneytum er skylt að áframsenda beiðnir sem heyra undir aðra aðila.

Stjórnvöld hafa sett sér upplýsingastefnu. Leiðarljós hennar eru að stjórnvöld viðhafi gagnsæja stjórnarhætti þar sem almenningur hefur aðgang að skýrum, traustum og áreiðanlegum upplýsingum um starfsemi stjórnvalda og opinber málefni. Stjórnvöld veiti greiðan aðgang að upplýsingum og noti til þess aðferðir sem auðveldi almenningi að finna upplýsingar og nota.

Notkun á efni vefsins

Öllum eru heimil afnot af fréttum og öðru efni sem ráðuneytin birta á vefnum. Nýtir þú efni af vefnum ertu vinsamlegast beðin(n) um að geta heimilda. Sértu með spurningu er þetta varðar, getur þú haft samband með því að senda póst á [email protected] eða upplýsingafulltrúa þess ráðuneytis sem málið varðar.

Merki

Ljósmyndir

jölmiðlum eru heimil afnot af fréttaljósmyndum sem birtar eru á vefnum en eru vinsamlegast beðnir um að geta heimildar. Sumar ljósmyndir á vefnum eru háðar höfundarétti þriðja aðila og eru þær yfirleitt merktar höfundi. Í slíkum tilvikum skal leita heimildar höfundar fyrir endurbirtingu. Hægt er að leita ráða um notkun ljósmynda með því að senda póst á [email protected] eða upplýsingafulltrúa þess ráðuneytis sem málið varðar.

Myndsnið

Myndirnar á Stjórnarráðsvefnum eru á WebP-sniði, sem er m.a. til að minnka skráarstærð án þess að tapa gæðum. Auðvelt er að vista myndirnar sem JPG ef þörf er á. Einfaldast er að hægrismella á myndina sem á að sækja og velja „Save image as…“

  • Windows: Opna myndina í myndvinnsluforriti, t.d. í Paint, sem fylgir yfirleitt Windows. Velja File > Save as > JPEG picture.
  • Mac: Opna myndina í myndvinnsluforriti, t.d. Preview. Velja File > Export, velja JPEG undir „Format“ og vista.
  • Photoshop: Opna myndina. Velja Export > Save for web > Image format: JPEG.

Athugið að það breytir ekki skráarsniðinu að breyta eingöngu endingunni úr „.webp“ í „.jpg“. Til að breyta myndinni í JPG þarf að vista hana á JPEG-sniði eins og lýst er hér að ofan.

Ráðherrar

Myndir af ráðherrum sem eru hér að neðan eru í hárri upplausn og nýtast því í prentun.