12 nóvember 2014
Aukið samstarf milli veðurstofa Íslands og Danmerkur
<p>Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Rasmus Helveg Petersen, loftslags- og orkumálaráðherra Danmerkur, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf landanna tveggja á sviði rannsókna á loftslagi, veðurfari og haffræði. Þá kveður viljayfirlýsingin á um aukið samstarf Veðurstofu Íslands og Veðurstofu Danmerkur.</p>