17 október 2014Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Starfshópur skoðar ráðleggingar OECD í umhverfismálum
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Sigurðar Inga Jóhannssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, um að setja á fót starfshóp með fulltrúum fimm ráðuneyta, í því skyni að yfirfara og meta ráðleggingar sem fram koma í nýlegri heildarúttekt OECD á stöðu og þróun umhverfismála á Íslandi fyrir tímabilið 2001 – 2013.