15 október 2012Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Ráðstefna um samfélagsleg áhrif kláms 16. október
Velferðarráðherra hvetur til hreinskiptinnar umræðu um aðgengi að klámi í íslensku samfélagi, áhrif þess á viðhorf, kynhegðun, hugsanleg bein áhrif á ofbeldi og mansal og annars konar misbeitingu. Hann skrifar um málið í grein sem birtist í Fréttablaðinu um helgina og minnir á ráðstefnu á morgun þar sem þetta verður til umræðu.