17 febrúar 2020
Félags- og barnamálaráðherra undirritar Sáttmála Alheimssamtaka heyrnarlausra um rétt allra til táknmáls og veitir félagi heyrnarlausra styrk
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag Sáttmála Alheimssamtaka heyrnarlausra um rétt allra til táknmáls. Félag heyrnarlausra undirrituðu sáttmálann hinn 11. febrúar sl., á degi íslenska táknmálsins og 60 ára afmælisdegi félagsins, en alheimssamtök heyrnarlausra gáfu sáttmálann út á síðasta ári.