19 desember 2014Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Tekjuviðmiðvegna frekari uppbótar á lífeyri hækkar um 12,5%
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í morgun tillögu Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, um að hækka tekjuviðmið vegna frekari uppbótar á lífeyri um 12,5% frá 1. janúar næstkomandi. Viðmiðið fer úr 200.000 kr. á mánuði í 225.070 kr. og verður þar með jafn hátt framfærsluviðmiði þeirra sem búa einir.