04 júní 2021Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Reynsla Íslands gagnleg fyrir endurheimt vistkerfa á heimsvísu
Ísland hefur langa reynslu í baráttu gegn eyðingu gróðurs og jarðvegs og sú reynsla getur gagnast öðrum. Þetta kom fram í máli Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, í pallborðsumræðum á vegum UNESCO, Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem haldnar voru í tilefni þess að Áratug vistheimtar er hleypt af stokkunum á heimsvísu.