13 október 2020Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
3 milljarða króna aukning til loftslagsmála
Gert er ráð fyrir 3 milljarða króna aukningu í fjárveitingum til loftslagsmála í fjármálaáætlun áranna 2021-2025, eða 600 milljónum króna á ári. Fjármunirnir skiptast á milli fjögurra meginþátta: orkuskipta, kolefnisbindingar, nýsköpunar og rannsókna, og styrkingar stjórnsýslu og losunarbókhalds.