12 júlí 2021Utanríkisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið
Samkomulag við Bretland á sviði menntunar og vísinda
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur undirritað fyrir Íslands hönd samkomulag við bresk stjórnvöld um samstarf á sviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar og geimvísinda. Hann segir það fagnaðarefni að greiður aðgangur íslenskra náms- og fræðimanna að breskum menntastofnunum verði áfram tryggður.