22 apríl 2015Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Viðurkenningar í tengslum við Dag umhverfisins
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, veitti Landspítala í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í 9. bekk í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ útnefndir Varðliðar umhverfisins.