12 mars 2010Forsætisráðherra fundar með fulltrúum Evrópunefndar þýska þingsins
Forsætisráðherra fundaði í dag með sendinefnd frá Evrópunefnd þýska þingsins. Nefndin mun fjalla um umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu, áður en kanslari Þýskalands tekur afstöðu til umsóknarinnar á fundi leiðtoga Evrópusambandsins.

12 mars 2010Vefrit mennta- og menningarmálaráðuneytis, 3. tbl.
Efni ritsins:

Umfjöllun um menntaþing 2010

Vefrit mennta- og menningamálaráðuneytis 11.3.2010

12 mars 2010Umhverfisráðherra hitti forseta Maldíveyja
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra átti fund með Mohamed Nasheed, forseta Maldíveyja, í hádeginu í dag. Þau ræddu meðal annars stöðu alþjóðlegra viðræðna um loftslagsmál og hlutverk smáríkja í þeim.

12 mars 2010Auglýsing sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um veitingu leyfa til hrefnuveiða árið 2010Frestur til að skila inn umsóknum rennur út þann 10. apríl 2010.
12 mars 2010Nr. 16/2010 - Skipting karfa í gullkarfa og djúpkarfaAð mati Hafrannsóknarstofnunar er hér um tvær aðskildar tegundir að ræða og hefur stofnunin væntanlega talið öll þessi ár að sameiginlegt aflamark leiði til aukinnar sóknar í þá tegund sem hagkvæmast er að sækja í hverju sinni.
12 mars 2010Fréttabréf stjórnenda ríkisstofnana 12. mars 2010
Í þessu fréttabréfi er sagt er frá ný útkominni handbók um kynjaða fjárlagagerð. Fjallað er um nýtt vefútlit og fyrirhugaðar breytingar á framsetningu efnis um starfsmannamál. Birt er yfirlit yfir kynjabókhald forstöðumanna og fjallað um samdrátt í launaútgjöldum ríkisins. Sagt er frá Starfsendurhæfingarsjóði og fjallað um aðhalds- og sparnaðaraðgerðir.…
11 mars 2010Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um loftferðir til umsagnar
Ný drög að lagafrumvarpi um um breytingu á lögum um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum eru nú til umsagnar hjá samgönguráðuneytinu. Unnt er að senda inn umsögn um drögin til og með miðvikudagsins 18. mars næstkomandi á netfangið [email protected].

11 mars 2010Mál nr. 143/2009Kærandi sagði sjálfur starfi sínu lausu. Ekki var í ljós leitt að ástæður kæranda fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í 40 daga staðfest.
11 mars 2010Mál nr. 105/2009Ákvörðun kæranda að segja starfi sínu lausu, án þess að hafa tryggt sér annað starf í staðinn, studdist ekki við gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hin kærða ákvörðun staðfest.
11 mars 2010Mál nr. 122/2009Aðstæður kæranda gáfu tilefni til að ætla að ákvörðun hennar um að halda ekki áfram námi væru gildar í skilningi 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, m.a. vegna skorts á leiðbeiningum af hálfu Vinnumálastofnunar um hvaða breytingar lög nr. 37/2009 hefðu í för með sér og því hversu takmörkuðu námi hún var í samhliða fæðingarorlofi vorið 2009. Hin kærða ákvörðun felld úr gildi.
11 mars 2010Mál nr. 115/2009Kærandi sinnti ekki þeirri skyldu sinni að tilkynna Vinnumálastofnun um áframhaldandi atvinnuleit hér á landi innan sjö virkra daga frá komudegi til landsins eins og skylt er skv. 1. mgr. 46. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hin kærða ákvörðun staðfest.
11 mars 2010Mál nr. 106/2009Ástæður kæranda fyrir uppsögn sinni ekki taldar gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í 40 daga staðfest.
11 mars 2010Mál nr. 108/2009Upplýsingar í málinu benda til þess að tvö mál sem virðast sambærileg hafi fengið ólíka meðhöndlun af hálfu Vinnumálastofnunar. Tilefni til að rannsaka málið betur og ekki talið unnt að bæta úr því á vettvangi úrskurðarnefndarinnar. Nauðsynlegt að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og vísa málinu aftur til Vinnumálastofnunar til löglegrar meðferðar.
11 mars 2010Mál nr. 109/2009Af gögnum málsins virðist ljóst að boðunarbréf Vinnumálastofnunar á fund barst kæranda með eðlilegum hætti. Í boðunarbréfinu var kæranda boðið að gera viðvart ef hann gæti ekki mætt á boðuðum fundartíma og tekið fram að með því að mæta ekki gæti hann misst rétt til bóta. Þær skýringar sem hann gaf fyrir fjarvist sinni réttlæta ekki fjarveru hans af fundinum. Niðurstaða Vinnumálastofnunar staðfest.
11 mars 2010Mál nr. 112/2009Með hliðsjón af ákvæðum 9., 10. 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur til kæranda staðfest.
11 mars 2010Endurskipulagning lyfjamála hafin
Framkvæmd lyfjamála verður tekin til gagngerrar endurskoðunar á vegum heilbrigðisráðuneytisins.

11 mars 2010Fundur Össurar Skarphéðinssonar með Lene Espersen utanríkisráðherra DanmerkurÁ fundinum fór ráðherra ítarlega yfir stöðu Icesave-málsins og mikilvægi þess að efnahagsáætlun Íslands sem unnin er í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn nái fram að ganga.
11 mars 2010Ráðherra sækir utanríkisráðherrafund Norðurlandanna í Kaupmannahöfn
Norrænu utanríkisráðherrarnir ræddu m.a. möguleika á aukinni samvinnu í rekstri sendiskrifstofa, aukna samvinnu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna og eftirfylgni loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn.

11 mars 2010Mjög góður árangur af starfi NEFCO
Mjög góður árangur náðist í rekstri Norræna Umhverfisfjármögnunarsjóðsins, NEFCO, á liðnu ári. Sjóðurinn veitti lán til 50 verkefna á árinu, aðallega í Rússlandi og Úkraínu. Þann 15. apríl efnir NEFCO til kynningarfundar fyrir íslensk fyrirtæki.

10 mars 2010Styrkir til mannréttindamála
Samkvæmt fjárlögum ársins 2010 hefur dómsmála- og mannréttindaráðuneytið átta milljónir króna til ráðstöfunar vegna verkefna að mannréttindamálum.

10 mars 2010Tillaga um ársfjórðungsleg skil úr bókhaldi sveitarfélaga
Dreift hefur verið á Alþingi lagafrumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum sem felur í sér að sveitarfélögum verði gert að skila ársfjórðungslega upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum til afnota fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, aðra opinbera aðila og Samband íslenskra sveitarfélaga.

10 mars 2010Mál nr. 11/2009: Dómur frá 10. mars 2010
Alþýðusamband Íslands f.h. Flugfreyjufélags Íslands gegn Samtökum atvinnulífsins f.h. Samtaka ferðaþjónustunnar vegna Icelandair ehf.

10 mars 2010Tilskipun um varnir gegn beittum áhöldumÁ fundi ráðherraráðs vinnu-, félags- og heilbrigðismála þann 8. mars var samþykkt tilskipun um vinnuvernd.

10 mars 2010Unnið að því að efla stöðu heilsugæslunnarHeilbrigðisráðherra hefur komið á fót nefnd til að leggja fram tillögur um hvernig unnt verði að efla stöðu heilsugæslunnar og tryggja að landsmenn búi við sem jafnasta kosti í heilsufarslegum efnum.
10 mars 2010Sameining Lýðheilsustöðvar og landlæknisembættisins undirbúin
Undirbúningshópur sem vinna mun að sameiningu Landlæknisembættis og Lýðheilsustöðvar fundaði í fyrsta sinn í heilbrigðisráðuneytinu í gær.

10 mars 2010Könnun á menningarneyslu Íslendinga
Könnunin var gerð í árslok 2009 af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Menningarvogin er yfirgripsmesta könnun sinnar tegundar sem gerð hefur verið hér á landi þar sem almenningur spurður út í aðsókn að menningarviðburðum og þátttöku í menningarstarfsemi og viðhorf til menningar í landinu.

10 mars 2010Afhending trúnaðarbréfs í Lettlandi
Í gær, 9. mars 2010, afhenti Elín Flygenring, sendiherra, Valdis Zatlers, forseta Lettlands, trúnaðarbréf sitt

09 mars 2010Lokað vegna útfarar
Vegna útfarar Þorsteins Geirssonar ráðuneytisstjóra verða skrifstofur dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins lokaðar eftir hádegi á morgun, 10. mars 2010.

09 mars 2010Tveir vegarkaflar boðnir út
Tvö stór verkefni í vegagerð á suðvesturhorni landsins verða boðin út í þessum mánuði. Annars vegar er það tvöföldun á 6,5 km kafla á Suðurlandsvegi og hins vegar breikkun Vesturlandsvegar á kafla í  Mosfellsbæ.

09 mars 2010Mál 09070115
Úrskurður ráðuneytisins vegna ákvörðunar Umhverfisstofnunar frá 13. júlí 2009 um útgáfu starfsleyfis fyrir Sorpstöð Suðurlands bs., til að urða allt að 30.000 tonn af almennum óvirkum úrgangi á ári í landi Kirkjuferjuhjáleigu í Sveitarfélaginu Ölfusi.

09 mars 2010Mál nr. 2/2010. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Hinn 8. janúar 2010 kærði Logaland ehf. ákvörðun Ríkiskaupa um val á tilboðum í útboðinu „14745: Rammasamningsútboð með heimild á örútboðum: Gips og fylgihlutir fyrir heilbrigðisstofnanir“.

09 mars 2010Nefnd skipuð um lækningatengda ferðaþjónustuÁlfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað nefnd til að skoða þær margvíslegu hugmyndir sem á lofti eru um uppbyggingu lækningatengdrar ferðaþjónustu á Íslandi.

09 mars 2010Kvennaskólanemar fræða heilbrigðisráðherra um HugaraflNemendur í 3. NÞ í Kvennaskólanum ræddu í dag við Álfheiði Ingadóttur heilbrigðisráðherra um Hugarafl, sem eru samtök fólks sem hefur átt við geðræna erfiðleika að stríða og iðjuþjálfa með víðtæka reynslu af geðheilbrigðismálum.
09 mars 2010Fundargerð stýrihóps um velferðarvakt frá 9. mars 2010
25. fundur haldinn hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar þriðjudaginn 9. mars 2010, kl. 14.00–16.00.

09 mars 2010Reglur nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla ÍslandsBirtar hafa verið í Stjórnartíðindum reglur nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands
09 mars 2010Auglýsing nr. 171/2010 um friðlýsingu húsa sbr. 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001Birt hefur verið í Stjórnartíðindum auglýsing nr. 171/2010 um friðlýsingu húsa sbr. 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001
09 mars 2010Reglur nr. 154/2010 um val nemenda til náms í næringarfræði við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla ÍslandsBirtar hafa verið í Stjórnartíðindum reglur nr. 154/2010 um val nemenda til náms í næringarfræði við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands
09 mars 2010Reglugerð nr. 160/2010 um matsnefnd náms- og starfsráðgjafaBirt hefur verið í Stjórnartíðindum reglugerð nr. 160/2010 um matsnefnd náms- og starfsráðgjafa
09 mars 2010Þróunarsjóður námsgagna 2010Þróunarsjóður námsgagna hefur úthlutað styrkjum af fjárlögum 2010
09 mars 2010Afhending trúnaðarbréfs í DanmörkuMánudaginn 15. febrúar 2010 afhenti Sturla Sigurjónsson Margréti Þórhildi II Danadrottningu

09 mars 2010Friðlýsing Gjástykkis undirbúin
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur ákveðið að hefja undirbúning að friðlýsingu Gjástykkis. Ákvörðun þess efnis var tilkynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

08 mars 2010Kosið um sameiningu Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar 20. mars
Kjósa á laugardaginn 20. mars um sameiningu Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar í Eyjafirði.

08 mars 2010Stígamót 20 ára - Aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Evrópuráðssamningur gegn kynbundnu ofbeldi Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra minntist, í ávarpi í tilefni tvítugsafmælis Stígamóta, þeirra tímamóta sem urðu fyrir tuttugu árum þegar samtökin voru stofnuð og það mikilvæga og nauðsynlega starf sem þau hafa unnið upp frá því.
08 mars 2010Anna Jóhannsdóttir - nýr ráðgjafi um utanríkismál í forsætisráðuneytinuAnna Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, hefur tekið til starfa sem alþjóðafulltrúi í forsætisráðuneytinu. Hún tekur við störfum af Sturlu Sigurjónssyni sem hefur flust til starfa sem sendiherra í Kaupmannahöfn.
08 mars 2010Stígamót 20 ára - Aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Evrópuráðssamningur gegn kynbundnu ofbeldi
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra minntist, í ávarpi í tilefni tvítugsafmælis Stígamóta, þeirra tímamóta sem urðu fyrir tuttugu árum þegar samtökin voru stofnuð og það mikilvæga og nauðsynlega starf sem þau hafa unnið upp frá því.

08 mars 2010Prime Ministers OfficeWork continues on a mutually acceptable solution to Icesave
The Icelandic authorities will continue to work towards a satisfactory solution to the Icesave issue on this basis. The three governments have declared their intention to continue the talks and find a solution to the matter.

08 mars 2010Könnun á menningarneyslu Íslendinga
Mennta- og menningarmálaráðuneytið í samvinnu við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands boðar til kynningarfundar um niðurstöður úr könnuninni:
Íslensk menningarvog - könnun á menningarneyslu Íslendinga

08 mars 2010Styrkir til háskólanáms á ÍtalíuÍtölsk stjórnvöld bjóða íslenskum nemendum að sækja um styrk til námsdvalar á Ítalíu næsta skólaár, 2010-2011.
08 mars 2010Erlendir fjölmiðlar haldnir til síns heimaÁ annað hundrað erlendir fjölmiðlamenn frá um fimmtíu fjölmiðlum komu til Íslands til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave í vikunni 1-7. mars. Stjórmvöld opnuðu fjölmiðlamiðstöð fyrir þá, þar sem boðið var upp á vinnuaðstöðu og fundi.
08 mars 2010Skipulagsstofnun opnar vefsjá
Skipulagsstofnun hefur opnað svokallaða Skipulagsvefsjá sem er rafrænt gagnasafn skipulagsáætlana sem varðveittar eru hjá stofnuninni. Með tímanum verður hægt að nálgast þar allt deili- og aðalskipulag sem samþykkt og staðfest hefur verið samkvæmt skipulags- og byggingarlögum.

07 mars 2010Frétt frá landskjörstjórn um niðurstöðu talningar
Landskjörstjórn hefur sent frá sér neðangreinda frétt um niðurstöðu talningar yfirkjörstjórna og umdæmiskjörstjórna á landinu öllu.

06 mars 2010Ministry for Foreign AffairsWork continues on a mutually acceptable solution to IcesavePress release of the Government of Iceland on the Icesave referendum
06 mars 2010Áfram unnið að farsælli lausn Icesave-málsinsFyrstu þjóðaratkvæðagreiðslunni frá stofnun íslenska lýðveldisins er lokið. Íslensk stjórnvöld munu áfram vinna að farsælli lausn Icesave-málsins á sömu forsendum. Þjóðirnar hafa einsett sér að halda viðræðum áfram og leita lausnar í málinu.
05 mars 2010Ministry of Finance and Economic AffairsIcesavetalks adjournedThe Government of Iceland has for the last three weeks been engaged in a dialogue with the Governments of the Netherlands and the United Kingdom, hoping for a resolution of the Icesave matter.
05 mars 2010Sveitarfélögum innan Eyþings fækkað úr 14 í 7, 5 eða 2?
Sjöundi fundur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtaka sveitarfélaga um eflingu sveitarfélaga var haldinn í gær á Akureyri. Nálega 50 sveitarstjórnarmenn af Norðausturlandi sátu fundinn.

05 mars 2010Endurgreiðslur vegna fæðingargalla í munnholi hækkaðar verulega
Heilbrigðisráðherra, Álfheiður Ingadóttir, undirritaði í dag nýja reglugerð um aukna þátttöku sjúkratrygginga í nauðsynlegum tannlækninga- og tannréttingakostnaði vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa.

05 mars 2010Ný áætlun um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu félags- og tryggingamálaráðherra um að ráðast í gerð nýrrar aðgerðaáætlunar stjórnvalda gegn kynbundnu ofbeldi fyrir tímabilið 2011-2015. Sérstaklega verður fjallað um meðferð kynbundinna ofbeldismála í dómskerfinu.

05 mars 2010Skipað í stjórn Tækniþróunarsjóðs
Iðnaðarráðherra hefur skipað nýja stjórn Tækniþróunarsjóðs. Fulltrúi ráðherra í stjórninni er Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP og er hann stjórnarformaður.

05 mars 2010Forecast 2010
The revised forecast for 2010 on HFF bond issuance for the purpose of financing new mortgages is ISK 42-50 billion which is an increase of ISK 8 billion from previous figures. The increase is due to the Fund´s expected purchase of mortgage portfolios as announced at the OMX Nordic Exchange on March 5th, 2010.

05 mars 2010Leiðbeiningarrit um frjálsan hugbúnað
Ríkisendurskoðun hefur gefið út rit sem ætlað er að fræða starfsmenn ríkistofnana um möguleika svokallaðs frjáls hugbúnaðar og leiðbeina um val á slíkum hugbúnaði. Í ritinu kemur fram að kostnaður íslenska ríkisins vegna kaupa á hugbúnaði hafi numið rúmlega 7,5 ma.kr. á tímabilinu 2006 til 2008.

05 mars 2010Upplýsingar um kjörstaði
Sveitarfélög auglýsa kjörstaði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars nk. og mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum. Hér er að finna tengla í kosningaupplýsingar á vefjum nokkurra sveitarfélaga.

05 mars 2010Upplýsingar um kjörstaði
Sveitarfélög auglýsa kjörstaði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars nk. og mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum. Hér er að finna tengla á vefsíður nokkurra sveitarfélaga.

05 mars 2010Spurningar vegna kjörskrár
Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá í þjóðaratkvæðagreiðslunni með því að smella hér.

Ef spurningar vakna vegna kjörskrár á kjördag er hægt að hringja í Þjóðskrá í síma 569-2904, 569-2905, 569-2906 og 569-2930 fram til klukkan 22.

05 mars 2010Erindi Svandísar Svavarsdóttur á ráðstefnu um vistvæn innkaupSvandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra flutti eftirfarandi erindi á ráðstefnu um vistvæn innkaup sem umhverfis- og fjármálaráðuneytin boðuðu til á Grand hóteli föstudaginn 5. mars 2010.
05 mars 2010Umsagnarferli að hefjast í vinnu við rammaáætlun
Niðurstöður faghópa 2. áfanga rammaáætlunar liggja nú fyrir og opið umsagnarferli stendur yfir frá 8. mars til 19. apríl. Niðurstöður hópanna verða kynntar á vefsíðunni rammaáætlun.is og á kynningarfundum.

05 mars 2010Hlé gert á Icesaveviðræðum
Síðustu þrjár vikur hafa farið fram viðræður milli samninganefndar Íslands og stjórnvalda í Bretlandi og Hollandi um lausn Icesave-málsins.

04 mars 2010Ministry of Finance and Economic AffairsTreasury finances January-December 2009Figures for Treasury finances in January-December 2009 are now available. Total Treasury revenue amounted to 415 billion, decreasing by 30 billion or 6.8%.
04 mars 2010Iðnaðarráðherra heimsækir Actavis hf
Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir heimsótti Actavis hf.

04 mars 2010Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í Laugardalshöll
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar á vegum sýslumannsins í Reykjavík er í Laugardalshöll. Þar er opið frá kl. 10-22 í dag og á morgun. Á kjördag frá kl. 10-18 fyrir þá sem ekki komast á kjörstað í sinni heimabyggð.

04 mars 2010Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í LaugardalshöllAtkvæðagreiðsla utan kjörfundar á vegum sýslumannsins í Reykjavík fer fram í Laugardalshöll. Þar er opið frá kl. 10-22 í dag og á morgun. Á kjördag er opið frá kl. 10-18 fyrir þá sem ekki komast á kjörstað í sinni heimabyggð.

04 mars 2010Upplýsingar um kjörstaði
Sveitarfélög auglýsa kjörstaði í þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars nk. og mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum. Sjá tengla á kosningaupplýsingar hjá nokkrum sveitarfélögum hér.

04 mars 2010Vefrit mennta- og menningarmálaráðuneytis, 2. tbl.
Meðal efnis:

Um inntökuskilyrði í framhaldsskólum
88,5 milljónum úthlutað til innlendrar dagskrárgerðar
Ný námstækifæri fyrir unga atvinnuleitendur 2010

Vefrit mennta- og menningamálaráðuneytis 4.3.2010

04 mars 2010Utanríkisráðherra hittir Westerwelle í Berlín
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, í Berlín. Þeir ræddu m.a. umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og með hvaða hætti þýska þingið mun fjalla um hana.

04 mars 2010Ný lög auka gagnsæi eignarhalds og skerpa áherslu á jöfn kynjahlutföll
Alþingi samþykkti í dag frumvarp efnahags- og viðskiptaráðherra til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög. Tilgangur frumvarpsins er að svara auknum kröfum sem fram hafa komið í ljósi liðinna atburða varðandi gagnsæi eignarhalds í hlutafélögum, um jafnari kynjahlutföll í stjórnum og minnka líkur á hagsmunaárekstrum í starfi stjórnarformanna.

03 mars 2010Dómsmálaráðherra á fundi með erlendum fréttamönnum
Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra fundaði í dag með erlendum blaða- og fréttamönnum sem komnir eru hingað til lands til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni næstkomandi laugardag.

03 mars 2010Þakkað fyrir útboð á Suðurlandsvegi
Fulltrúar íbúa á Suðurlandi afhentu í gær Kristjáni L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, undirskriftir 27 þúsund íbúa þar sem ráðherra er þakkað fyrir þann áfanga Suðurlandsvegar sem nú er boðinn út.

03 mars 2010Ministry for Foreign AffairsPress centre set up for visiting journalists for Saturday's referendumOver 30 media outlets are expected in Iceland for the referendum.
03 mars 2010Ráðherra á fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í New York
„Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að vinna ötullega að jafnrétti karla og kvenna. Jafnrétti kynja er grundvöllur þess að efla lýðræði og skapa sjálfbæran heim, líkt og okkur ber skylda til gagnvart börnunum okkar og komandi kynslóðum.“ Þetta sagði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, á fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem nú fer fram í New York.

03 mars 2010Aðstoðarmaður ráðherra í leyfi í mars.
Arnar Guðmundsson, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, er í launalausu leyfi frá störfum í mars...

03 mars 2010Embætti skólameistara Framhaldsskóla við utanverðan EyjafjörðSjö umsóknir bárust um embætti skólameistara Framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð.
03 mars 2010Æskulýðssjóður 2010
Mennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði

03 mars 2010Fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fréttamenn opnuðUm þrjátíu erlendir fréttamiðlar hafa boðað komu sína til Íslands vegna fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis um Icesave-lögin.
03 mars 2010Stefnumót um jökla og spár IPCC
Á 17. Stefnumóti umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun verður fjallað um bráðnun jökla í Himalayafjöllum og loftslagsskýrslu Sameinuðu þjóðanna. Stefnumótið fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins 5. mars kl. 12:00-13:30.

03 mars 2010Nr. 15/2010 - Nýting sjávaraflaMatís ohf. hefur frá vorlokum 2009 unnið að greiningu fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið á nýtingu sjávarafla hér við land.
03 mars 2010Bætt nýting sjávaraflaMatís ohf. hefur frá vorlokum 2009 unnið að greiningu fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið á nýtingu sjávarafla hér við land.
02 mars 2010Umsækjendur um embætti héraðsdómara
Alls sóttu 37 um sex embætti héraðsdómara sem miðað er við að skipað verði í frá og með 1. maí nk.

02 mars 2010Umboðsmenn ólíkra sjónarmiða í einstökum kjördæmum
Landskjörstjórn hefur skipað tólf einstaklinga sem umboðsmenn ólíkra sjónarmiða við þjóðaratkvæðagreiðsluna í einstökum kjördæmum, sbr. 9. gr. laga nr. 4/2010 um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar.

02 mars 2010Styrkjum úthlutað til meira en 65 menningarverkefna á AusturlandiMenningarráð Austurlands úthlutaði í gær 25. febrúar styrkjum til ríflega 65 menningarverkefna á Austurlandi, samtals að upphæð 23 milljónum króna. Hæstu styrkir námu 1 milljón króna en þeir lægstu 100 þúsund krónum.
02 mars 2010Svör við spurningum ESB um umhverfismál
Umhverfisráðuneytið hefur látið þýða svör ráðuneytisins við spurningalista framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um umhverfismál sem unnin var í tengslum við aðildarumsókn Íslands að sambandinu. Nú er hægt að nálgast svörin hér á heimasíðu umhverfisráðuneytisins.