21 desember 2021Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Tuttugu milljónir króna til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 20 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til endurbyggingar Miðgarðakirkju í Grímsey. Kirkjan sem brann til grunna 22. september sl. var elsta bygging eyjarinnar, byggð 1867, og var hún friðuð árið 1990.