22 nóvember 2012
Yfirlit
um vistheimt á Norðurlöndum
<p>Endurheimt vistkerfa getur haft afgerandi áhrif á þróun umhverfismála á heimsvísu, s.s. líffræðilega fjölbreytni, loftslagsbreytingar, aukinn sveiganleika og þol vistkerfa til að bregðast við auknu álagi og bætt almenn lífsskilyrði fólks. Þetta er meðal þess sem fram kemur í lokaskýrslu norræna verkefnisins Vistheimt á Norðurlöndum, sem Landgræðsla ríkisins stýrði.</p>