12 júní 2023
Ræddu samstarfsfleti á nýtingu jarðhita
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra átti í dag tvíhliða fund með Robert Habeck, efnahags- og loftslagsmálaráðherra og vara-kanslara Þýskalands. Á fundinum, sem fram fór í Felleshus í Berlín, ræddu þeir m.a. um mögulega samstarfsfleti ríkjanna þegar kemur að nýtingu á jarðhita.