30 júlí 2007Utanríkisráðuneytið
Undirritun viljayfirlýsingar um samstarf Íslands og Indlands á sviði sjávarútvegsmála
Sendiherra Íslands á Indlandi, Dr. Gunnar Pálsson, og ráðuneytisstjóri sjávarútvegsmála í landbúnaðarráðuneyti Indlands, frú Charusheela Soni, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf Íslands og Indlands á sviði sjávarútvegsmála.