12 maí 2011Atvinnuvegaráðuneytið
Nefnd um verðtryggingu skilar skýrslu
til efnahags- og viðskiptaráðherra
Eygló Harðardóttir, formaður nefndar um verðtryggingu, afhenti í morgun Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, skýrslu nefndar sem falið var að kanna forsendur verðtryggingar á Íslandi og meta kosti og galla þess að draga úr vægi verðtryggingar í íslensku fjármálakerfi, án þess að fjármálastöðugleika sé ógnað.