03 apríl 2012
Íslensk hönnun á Turku Design Week í Finnlandi
<p>Sendiráð Íslands í Helsinki, með aðstoð utanríkisráðuneytisins og Hönnunarmiðstöðvar Íslands, tók þátt í Turku Design Week sem fram fór síðustu vikuna í mars. Sett var upp ljósmyndasýning um íslenska hönnun (Design in Iceland), sýndir voru hönnunarmunir úr sýningunni "Íslensk samtímahönnun” og Fuzzy kollum, sem sendiráðið festi kaup á í fyrra, var stillt upp á sýningarbásnum.</p>