01 desember 2017
Ríkisstjórnin samþykkti aukin framlög vegna flóða á Suðaustur- og Austurlandi
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag, á grundvelli tillögu samráðshóps ráðuneytisstjóra, að veita þeim stofnunum sem unnið hafa að vöktun og viðbúnaði í kjölfar úrkomuveðurs, vatnavaxta og flóða á Suðaustur- og Austurlandi í lok september og byrjun október síðastliðinn aukin fjárframlög að upphæð 317,6 m.kr.