16 maí 2014Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið
Sameining stofnana sem annast þjónustu við
fatlað fólk
Í undirbúingi er að sameina í eina stofnun Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands og Tölvumiðstöðina. Þess er vænst að jafnt faglegur og fjárhagslegur ávinningur verði af sameiningunni. Stöðugildi hjá þessum stofnunum eru rúmlega 90.