16 desember 2020
Fyrsta úthlutun Matvælasjóðs: Beint streymi í dag kl 9:30
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Gréta María Grétarsdóttir, formaður Matvælasjóðs, kynna fyrstu úthlutun sjóðsins í beinu streymi í dag, 16. desember 2020, kl. 09:30. Alls bárust 263 umsóknir um styrki. Sjóðurinn hefur 500 milljónir til úthlutunar.