20 mars 2014
Jafnréttisviðurkenningar veittar: „Jafnrétti þarf
að fremja“
<p>Samtök kvenna af erlendum uppruna og Orkuveita Reykjavíkur hlutu jafnréttisviðurkenninguna fyrir árið 2013 sem Eygló Harðardóttir, ráðhera jafnréttismála veitti í dag. „Það er ekki nóg að virða jafnréttið, það þarf að fremja það,“ sagði forstjóri Orkuveitunnar þegar hann tók á móti viðurkenningunni við athöfn sem haldin var í Hannesarholti að viðstöddu fjölmenni.</p>