26 nóvember 2013
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra á orkuráðstefnu í Rúmeníu - EFTA sjóðurinn styrkir verkefni á sviði endurnýjanlegrar orku
<p>Í dag ávarpaði Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ráðstefnu í Búkarest, sem haldin er í tilefni af því að Þróunarsjóður EFTA hleypir nú af stokkunum verkefnum á sviði endurnýjanlegrar orku þar í landi, m.a. verkefnum í aukinni hitaveituvæðingu. Með ráðherra í för eru forsvarsmenn íslenskra fyrirtækja sem hafa mikla reynslu á sviði jarðhitanýtingar.</p>