06. janúar 2025Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Flutningur ráðuneytisstjóra
Gissur Pétursson, ráðuneytisstjóri félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, hefur að eigin ósk látið af embætti ráðuneytisstjóra. Ásdís Halla Bragadóttir flyst í embætti ráðuneytisstjóra félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og Sigrún Brynja Einarsdóttir flyst í embætti ráðuneytisstjóra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins.