6. Ábendingar verkefnisstjórnar og viðaukar

Verkefnisstjórn loftslagsaðgerða hefur breytt verklagi sínu nokkuð frá útgáfu síðustu skýrslu í október 2025 með það að markmiði að tryggja eftirfylgni með aðgerðum. Að auki hefur verið leitast við að mæta þeim ábendingum sem Loftslagsráð sendi frá sér í áliti ráðsins á fyrri skýrslu verkefnisstjórnar. Mikil vinna liggur að baki þeim umbótum sem koma fram hér en enn er rými til að bæta skýrslugjöf verkefnisstjórnar með gagnsæi að leiðarljósi og verður áfram unnið að því í aðdraganda næstu skýrslu sem kemur út í september 2027.

Aðgerðir sem aðilar að verkefnisstjórn loftslagsaðgerða leggja til að fari í innleiðingu fara nú í gegnum fjölþáttamat. Um er að ræða mat á árlegum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda, kostnaði, útfærslu aðgerðar og auðframkvæmanleika, þar sem m.a. er tekið tillit til tækniþróunar og umhverfis­áhrifa. Með matinu er leitast við að draga fram styrkleika og veikleika hverrar aðgerðar, greina hindranir og skapa grundvöll fyrir samanburð og forgangsröðun aðgerða. Matið gefur þó ekki alltaf heildstæða mynd á þessu stigi. Útfærsla og markmið aðgerðanna eru oft þess eðlis að ekki er unnt að meta árlegan samdrátt í losun eða kostnað af nægilegri vissu þegar um er að ræða stuðningsaðgerðir eða aðgerðir sem stuðla að samdrætti í losun með öðrum hætti. Matið getur jafnframt tekið breytingum eftir því sem frekari upplýsingar liggja fyrir og útfærsla aðgerða verður skýrari. Þá þarf jafnframt að bæta kostnaðar- og ábatamat aðgerða svo það gefi traustari grundvöll fyrir forgangsröðun og samanburð á aðgerðum m.t.t. loftslagsávinnings og kostnaðar.

Unnið hefur verið að mótun samfélagsmats fyrir loftslagsaðgerðir sem hluta af fjölþáttamati. Matsferillinn var unninn af Rannsóknarsetri um ójöfnuð við Háskóla Íslands, en ferillinn verður innleiddur sem hluti af fjölþáttamati fyrir nýjar loftslagsaðgerðir. Matinu er ætlað að greina m.a. hvort aðgerðir hafi meiri áhrif, jákvæð eða neikvæð, á ákveðna þjóðfélagshópa. Tvær aðgerðir voru valdar til að prófa matsferilinn, annars vegar fyrir aðgerðina S.6.B.11: Orkuskipti smábáta með breytingum á núverandi flota, og hins vegar fyrir aðgerðina S.5.C.2: Styrkir til kaupa á hreinorku fólks- og sendibílum. Niðurstaða matsins var að aðgerð S.6.B.11 hefði engin eða jákvæð samfélagsáhrif. Rafvæðing smábáta getur skapað jákvæð áhrif, m.a. vegna lægri rekstrarkostnaðar, nýrra atvinnutækifæra og betri umhverfisgæða, en tryggja þarf að minni útgerðir og sjávarbyggðir geti nýtt stuðninginn. Aðgerð S.5.C.2 var hins vegar metin hafa nokkuð neikvæð samfélagsáhrif. Tekjuhærri heimili eiga auðveldara með að nýta styrkina en tekjulægri heimili og fólk utan stærstu þéttbýlissvæða. Draga mætti úr ójöfnuði með tekjutengdum styrkjum, stuðningi við notaða rafbíla og betri hleðsluinnviðum.

Í skýrslunni er í fyrsta sinn lagt mat á framgang aðgerða með árangursmæli­kvörð­um, en í tengslum við þá vinnu var einnig skerpt á markmiðum aðgerða svo hægt væri að leggja mat á hvenær aðgerðum er raunverulega lokið. Töluverð vinna fór í þessa fyrstu útgáfu, en ljóst er að mikil tækifæri eru til að nýta mælikvarðana betur m.a. til að grípa ávinning loftslagsaðgerða þar sem það er hægt. Í þeim tilfellum sem loftslagsávinningur aðgerða er óljós eða eins og í tilfelli sumra aðgerða sem styrktar eru úr Loftslags- og orkusjóði að ávinningur er ekki ljós fyrr en aðgerðum er lokið er mikilvægt að gera grein fyrir árangri þegar aðgerð telst lokið og ávinningur hennar liggur fyrir. Í öðrum tilvikum er ekki um bein mælanleg loftslagsáhrif að ræða en þó mat sérfræðinga að aðgerðin ýti undri loftslagsávinning annara aðgerða. Fjölþáttamat mun einnig gagnast vel til framtíðar við skilgreiningu á markmiðum og mælikvörðum aðgerða í innleiðingu.

Þá er í skýrslu verkefnisstjórnar í ár í fyrsta sinn gerð grein fyrir aðlögunaraðgerðum í framkvæmd eftir útgáfu fyrstu aðlögunaráætlunar í desember sl. Ekki er gerð grein fyrir framgangi með árangursmælikvörðum, en unnið er að útfærslu mælikvarða samhliða uppfærðri aðlögunaráætlun í ljósi þess að ráðuneytið hlaut styrk úr LIFE-áætlun Evrópusambandsins. Styrkurinn er til sex ára og nemur um 1,6 ma.kr. Ellefu stofnanir og tveir háskólar taka þátt í umsókninni og standa vonir til þess að með auknu fjármagni gangi innleiðing aðlögunaráætlunar hraðar fyrir sig en hún hefði annars gert.

Í kjölfar útgáfu skýrslu verkefnisstjórnar verður uppfærsla á heimasíðu loftslagsáætlana, CO2.is, þar sem þær breytingar sem verða á aðgerðum eða árangri þeirra munu endurspegl­ast, milli þess sem lögbundin skýrslugjöf fer fram. Þegar markmið og mælikvarðar aðgerða verða orðin aðgengileg á heimasíðunni gefst jafnframt tækifæri til reglulegra mats á fram­gangi aðgerða í framkvæmd. Fjölþáttamat aðgerða í innleiðingu verður jafnframt gert aðgengi­legt.

Framreiknuð losun gróðurhúsalofttegunda sýnir að núverandi aðgerðir duga ekki til til að standast loftslagsskuldbindingar. Um 20% vantar upp á til að markmið um 41% minni samfélagslosun árið 2030 en árið 2005 verði náð. Frávikið má meðal annars rekja til þess að umfang aðgerða hefur breyst og innleiðing þeirra gengið hægar en áætlað var. Til að standast skuldbindingar og koma í veg fyrir enn alvarlegri afleiðingar loftslagsbreytinga er ljóst er að grípa þarf til umfangsmeiri aðgerða sem stuðla að hraðari og markvissari samdrætti í losun og aukinni kolefnisbindingu, samhliða aðlögun. Tryggja þarf fullnægjandi fjármögnun og faglega forgangsröðun með hliðsjón af loftslagsávinningi. Þá er samstillt átak þvert á stjórnsýslustig og geira, ásamt skýrri pólitískri forystu og víðtækri samstöðu, forsenda þess að tilskilinn árangur náist. Kostnaður ríkissjóðs vegna aðgerðarleysis getur orðið verulegur, m.a. vegna kaupa á losunarheimildum verði loftslagsskuldbindingar ekki uppfylltar, en sá kostnaður gæti numið milljörðum eða tugum milljarða króna.

Loftslagsráð birti nýlega álitsgerð um ráðgefandi áliti Alþjóðadómstólsins um loftslagsskyldur ríkja og þýðingu þess fyrir Ísland, sem undirstrikar jafnframt þá lagalegu áhættu sem kann að skapast ef loftslagsskuldbindingar eru ekki efndar. Aukinn grundvöllur kann að vera fyrir lögsóknum á hendur ríkisins vegna mögulegra vanefnda á sviði loftslagsmála með tilheyrandi kostnaði og rýrnun á orðspori landsins sem framsækið ríki á sviði umhverfis- og loftslagsmála.

Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP[1]) gaf í mánuðinum út skýrslu þar sem dregin er upp dökk mynd af stöðu loftslagsmála á heimsvísu. Ekki er lengur talið raunhæft að koma í veg fyrir að hnattræn hlýnun fari yfir 1,5°C í náinni framtíð með alvarlegum afleiðingum. Í þessu samhengi er vert að nefna möguleg áhrif veikingar eða hruns veltihringrásar Atlants­hafsins (AMOC). Þrátt fyrir að óvissa í niðurstöðum rannsókna sé enn mikið er þróun þekkingar á þessu sviði ör og líkurnar á mögulegu hruni miðað við óbreytt ástand taldar vera allt að 50% eftir 2100[2]. Enn er þó hægt að hafa mikil áhrif á hversu alvarleg og víðtæk áhrif loftslagsbreytinga verða. Öruggasta leiðin til að koma í veg fyrir afleiðingar loftslagsbreytinga er að draga hratt úr losun gróðurhúsalofttegunda ásamt því að tryggja að Ísland standi við alþjóðaskuldbindingar sínar gagnvart markmiði Parísarsáttmálans um að takmarka hlýnun jarðar við 1,5°C miðað við meðalhita fyrir iðnbyltingu.

[1] UNEP, 2026. Nariobi, 2026.

[2] T.d. Drifjhout o.fl.. 2025. Environ. Res. Lett. 20 094062; Rahmstorf eo.fl. 2024. Oceanography.

Viðauki I – Staða aðgerða úr innleiðingaráætlun 2025-2026

Í skýrslu verkefnisstjórnar árið 2025 var birtur listi yfir forgangsaðgerðir til innleiðingar annars vegar og aðrar aðgerðir til innleiðingar hins vegar. Í töflunni hér að neðan má finna yfirlit yfir stöðu þessara aðgerða en þeim eru nánar gerð skil í viðeigandi undirköflum í kafla 4, eftir því sem við á.

Tafla 1. Yfirlit yfir stöðu aðgerða úr innleiðingaráætlun 2025-2026. Forgangsaðgerðir eru stjörnumerktar.

FlokkurAðgerð HeitiStaða
LandnotkunL.1.A.3*Heildstæð áætlun um bætt gögn og upplýsingar í losunarbókhaldi ÍslandsLokið
L.1.B.1*Endurheimt votlendis á jörðum í eigu ríkisinsÍ framkvæmd
L.1.C.1*Endurheimt birkiskóga á jörðum í eigu ríkisinsÍ framkvæmd
L.1.C.2 Ræktun skóga á jörðum í eigu ríkisinsUtan aðgerðaáætlunar
L.1.C.3*Endurheimt þurrlendisvistkerfa á röskuðu landi á jörðum í eigu ríkisins og á þjóð­lendumUtan aðgerðaáætlunar
L.1.D.1 Vernd og viðhald kolefnisríkra vistkerfa og gróðurs við skipulagsgerðÍ innleiðingu
L.1.D.2 Greining á stjórntækjum til verndunar kolefnisríkra vistkerfaÍ framkvæmd
SamfélagslosunS.1.A.5 Föngun og geymsla eða hagnýting gróðurhúsalofttegunda frá rekstri jarð­varmavirkjanaAðgerðin þarfnast frekari mótunar og fer því úr innleiðingu
S.2.A.1 Reynsluverkefni um losunarfría fram­kvæmd hjá VegagerðinniÍ framkvæmd
S.2.C.1 Uppsprettugreining á losun gróðurhúsa­lofttegundaÍ innleiðingu
S.5.C.3*Styrkir til kaupa á hreinorkuvöru- og hópbifreiðumÍ framkvæmd
S.5.C.4*Stigvaxandi krafa um hlutfall endurnýjan­legra orkugjafa í samgöngum á landiAðgerðin þarfnast frekari mótunar og fær stöðuna fyrirhugað
S.5.C.5*Hagrænir latar á ökutæki knúin jarðefna­eldsneytiLokið
S.5.C.9*Rafbílavæðing ökutækjaleigaFyrirhuguð
S.3.A.7 Auka skil á kælimiðlum til úrgangs­meðhöndlunarAðgerðin þarfnast frekari mótunar og fer því úr innleiðingu
S.4.B.1 Innleiðing á skyldu um skil á upplýs­ingum um áburðar- og kölkunarþörfUtan aðgerðaáætlunar. Felld undir aðgerð S.4.A.3
S.4.B.2*Styðja við innleiðingu tækni til nákvæmnisdreifingar áburðarLokið
S.4.B.3*Stuðningur til bænda til aðgerða sem draga úr áburðarþörfÍ innleiðingu undir nýju nafni og númeri (S.4.A.4)
S.5.B.1 Uppbygging hjóla- og göngustíga á höfuðborgarsvæðinuFelld undir aðgerð S.5.B.3
S.5.B.5 Almenningssamgöngur á hreinorku milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkur­flugvallarÍ innleiðingu
S.5.C.10 Útfösun bensín- og dísilbifreiða á ÍslandiUtan aðgerðaáætlunar
S.6.A.2 Forgangsröðun og uppbygging rafmagnshleðsluinnviða í höfnumÍ innleiðingu
S.6.A.3 Forgangsröðun og uppbygging hreinorkuinnviða í höfnumÍ innleiðingu
S.6.B.5 Orkuskipta ferjum ríkisinsEkki lengur í innleiðingu. Engar nýjar ferjur í samgönguáætlun. Verður endurskoðað með nýrri áætlun.
S.7.B.2 Hagrænir hvatar vegna úrgangsstraumaAðgerðin þarfnast frekari mótunar og fer því úr innleiðingu
S.7.B.5 Samvinnuverkefni um uppbyggingu líforkuversAðgerðin er í frekari mótun hjá samráðshópi um lífrænan úrgang og fer því úr innleiðingu og fær stöðuna fyrirhugað
S.7.B.6 Samvinnuverkefni um uppbyggingu brennslustöðvaÍ innleiðingu

Viðskiptakerfi ESB um losunarheimildir

 

V.1.B.2*Fjárfestingar í nýsköpun og tækniþróun innan ETS-geiransLokið
V.1.B.3 Móta ramma vegna orkuúttektaUtan aðgerðaáætlunar
V.2.A.1 Uppbygging varaflugvallaLokið
Þverlægar aðgerðirÞ.2.E.1 Samfélagsleg áhrif loftslagsaðgerðaÍ framkvæmd

 
 

Viðauki II – Eyðublað fyrir fjölþáttamat mótvægisaðgerða

Eyðublað fyrir fjölþáttamat mótvægisaðgerða

Ef mat fór ekki fram er enginn litur og þá stendur: Ekki metið

Mat á samdrætti

Ef unnt er að greina losunarávinning af aðgerðinni kemur hann hér fram. Mat er í flestum tilfellum framkvæmt af Umhverfis- og orkustofnun og Landi og skógi.

Kostnaðar- og ábatamat

Ef unnt er að greina kostnað og ábata vegna aðgerðar kemur hann hér fram. Niðurstaðan verði í kr./t CO2íg.

Útfærsla aðgerðar

Greining á útfærslu aðgerðar leiðir til tölulegs mats, á kvarðanum 1-5, en yfirlitstafla í sýnir einungis viðeigandi lit. Greiningin byggir á eftirfarandi töflu:

 

 
Lokaeinkunn er svo varpað yfir í einn af þremur litum til birtingar í yfirlitstöflu.

 

Lokaeinkunn1,0-1,61,7-3,33,4-5,0
Litur   

 

Auðframkvæmanleiki - tækni

Auðframkvæmanleiki m.t.t. tækni segir til um hvort tæknilegar hindranir séu í vegi fyrir framkvæmd aðgerðar. Hann er metinn með tækniviðbúnaðarstigi (technology readiness level, TRL) skv. kvarða frá Alþjóðaorkumálastofnuninni: https://www.iea.org/data-and-statistics/data-tools/etp-clean-energy-technology-guide.

Skalinn er frá 1 upp í 11 en er hópaður í 6 hópa eftir því hversu þroskuð tæknin er:

 

HópurHugmyndLítil frumgerðStór frumgerðSýningar-eintakÍ markaðs-útbreiðsluÞroskuð tækni
TRL skali1-45-89-11
Litur   
         

Greining á tækniviðbúnaðarstigi er svo varpað yfir í liti til að sýna í yfirlitstöflu.

Ef tækniviðbúnaðarstig á ekki við um aðgerðina þá inniheldur þessi greining „Á ekki við“ og TRL er merkt sem grænt í yfirlitstöflunni í upphafi skjalsins.

Auðframkvæmanleiki - annað

Auðframkvæmanleiki m.t.t. annarra þátta segir til um hvort aðrar hindranir séu í vegi fyrir framkvæmd aðgerðar. Það gæti t.d. endurspeglað pólitískan vilja og lagaumhverfi.

Rökstyðja þarf hvaða hindranir séu í vegi fyrir hverri aðgerð.

 

Auðframkvæmanleiki - annaðMiklar hindranirNokkuð um teljandi hindranirEngar teljandi hindranir
Litur   

 

Umhverfisáhrif

Hlutinn sem snýr að umhverfisáhrifum metur annars vegar hvort aðgerð af þessu tagi geti haft áhrif á umhverfisþætti og hins vegar er þá kortlagt hver áhrifin eru eftir því sem við á.

Tafla 1 Fyrri hluti umhverfismats: Gerð grein fyrir hvaða umhverfismarkmið aðgerðin getur haft áhrif á.

 

Greining á umhverfisáhrifum fyrir ofan er svo varpað yfir í liti til að sýna í yfirlitstöflu.

 

UmhverfisáhrifMikil neikvæðNokkuð neikvæðEngin eða jákvæð
Litur   

 

Matið er byggt upp eftir fyrirmynd frá reglugerð (ESB) 2020/852 (flokkunarreglugerðin), sjá sérstaklega 7. grein, fyrir utan notkun litaskala til að sýna niðurstöður mats. Gagnleg sýnidæmi má finna í viðauka IV við tæknilýsingu um notkun umhverfismats í tengslum við reglugerð (ESB) 2021/241 um endurheimt og viðnámsþrótt.

Samfélagsáhrif

Verður fyllt út skv. forskrift Rannsóknarseturs um ójöfnuð við Háskóla Íslands.

Aukaefni (t.d. næmnigreining) eftir því sem við á