Framhaldsfræðsla og símenntun

Framhaldsfræðsla miðar að því að veita fullorðnum einstaklingum með stutta formlega skólagöngu viðeigandi námstækifæri og auðvelda þeim að hefja nám að nýju, samanber lög nr. 27/2010. Málefnasvið framhaldsfræðslu er sérstakur fjárlagaliður og undir hann heyra m.a. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Fræðslusjóður og ýmsir fræðsluaðilar, þ. á m. símenntunarmiðstöðvar, tungumálaskólar og Fjölmennt.

Mennta- og barnamálaráðuneytið fer með málefni framhaldsfræðslunnar samkvæmt forsetaúrskurði sem tók gildi 15. mars 2025. Ráðherra, eða aðili sem hann felur þau verkefni, vottar námskrár og námsskrárlýsingar, sbr. 6. gr. laga um framhaldsfræðslu nr. 27/2010, og veitir fræðsluaðilum viðurkenningu til þess að annast framhaldsfræðslu, sbr. 7. gr. laganna. Mennta- og barnamálaráðuneytinu hefur verið falið að annast vottun námskráa í framhaldsfræðslu og viðurkenningar fræðsluaðila í framhaldsfræðslu og gæta þannig að samræmi sem gera má í kröfum til fræðsluaðila sem vinna þvert á kerfi menntunar og atvinnulífs.

Úttektir á framhaldsfræðslu

Unnið var að heildarendurskoðun framhaldsfræðslu árin 2022-2024 og samhliða gerðar margskonar úttektir og greiningar til að fá betri yfirsýn yfir málaflokkinn.

Viðurkenning fræðsluaðila í framhaldsfræðslu

Fræðsluaðilar í framhaldsfræðslu eru viðurkenndir á grundvelli 7. gr. laga um framhaldsfræðslu nr. 27/2010. Jafnframt gildir um þá reglugerð um framhaldsfræðslu nr. 1163/2011.

Mennta- og barnamálaráðuneytið veitir fræðsluaðilum viðurkenningu til þess að annast framhaldsfræðslu.

Nánar um viðurkenningu fræðsluaðilaListi yfir viðurkennda fræðsluaðila

Námskrár og námslýsingar í framhaldsfræðslu

Fræðsluaðilar eða aðrir fagaðilar, geta sótt um vottun námskráa/námslýsinga til mennta- og barnamálaráðuneytisins samkvæmt 6. grein laga um framhaldsfræðslu.
Nánar um vottun námskráa í framhaldsfræðsluListi yfir vottaðar námskrár

Námskrár í íslensku fyrir útlendinga

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur gefið út námskrár í íslensku fyrir fullorðna útlendinga sem tengdar eru við A og B færnistig Evrópsks tungumálaramma og veita þær leiðbeiningar um kennslu og námsmat. Námskrá um grunnnám var gefin út 2008 og er miðuð við 240 stundir og framhaldsnámskrá er skipt upp í fimm heildstæða áfanga þar sem hver um sig er 60 stundir.Lögð er áhersla á faglega framkvæmd kennslu þar sem námsefni, framsetning og framvinda náms verði sniðin eftir forsendum þátttakenda. Grunnnámskráin, 837/2008 og var birt í Stjórnatíðindum 2. sept. það ár og síðari námskráin var birt 4. janúar 2010. Með útgáfunum beindi ráðuneytið því til fræðsluaðila, sem bjóða upp á íslenskunám utan formlega skólakerfisins, að hafa námskrárnar til hliðsjónar við íslenskukennsluna til að tryggja samræmi milli einstakra námskeiðshaldara. Háskóli Íslands birtir og þýðir valda kafla Evrópska tungumálarammans og sýnipróf á mismunandi færnistigum til að miðla þekkingu um hagnýtingu rammans við kennslu og námsmat.

Mat og eftirlit með gæðum

Fræðsluaðilar eiga að meta starfsemi sína með reglubundnum hætti og stuðla að gæðum fræðslustarfs samkvæmt lögum um framhaldsfræðslu. Sérstaklega á að hlusta eftir röddum þátttakenda og birta opinberlega upplýsingar um innra gæðamat og áætlanir um umbætur. Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti hefur umsjón með þessum þætti, meðal annars með samningum, og er heimilt að fela öðrum að annast þá umsjón.