Um Velferðarvaktina

Skipunarbréf Velferðarvaktarinnar

Velferðarvaktinni er ætlað að fylgjast með félagslegri- og fjárhagslegri stöðu einstaklinga og fjölskyldna í landinu með áherslu á velferð og afkomu efnalítilla barnafjölskyldna, einkum einstæðra foreldra og barna þeirra. Velferðarvaktin afli upplýsinga um aðstæður þeirra sem búa við sárafátækt og skoði með hvaða hætti draga megi úr henni. Velferðarvaktin taki auk þess til skoðunar önnur mál eftir atvikum sem talið er að þarfnist frekari umfjöllunar og mögulega tillögur þar um. Velferðarvaktin er óháður ráðgefandi fyrir félags- og barnamálaráðherra, sem og stjórnvöld og skal leggja eftir atvikum fram tillögur til úrbóta sem stjórnvöld taki afstöðu til hverju sinni. Velferðarvaktin skal fylgjast með framvindu tillagnanna.

Velferðarvaktin hefur upplýsingarskyldu gagnvart stjórnvöldum jafnt sem almenningi og skal miðla upplýsingum til þeirra með markvissum hætti.

Fulltrúar í vaktinni