Reglulegar úttektir á líðan hinsegin barna og ungmenna
Festar verði í sessi reglulegar úttektir á líðan hinsegin barna og ungmenna í grunn- og framhaldsskólum, m.a. í því skyni að greina langtímaþróun. Gefnar verði út árlegar skýrslur með samanburði á milli ára um líðan hinsegin barna í grunnskólum. Samsvarandi skýrslur verði gefnar út annað hvert ár um líðan nemenda í framhaldsskólum.
Markmið aðgerðarinnar verði að safna gögnum um líðan hinsegin barna og ungmenna í skólakerfinu til að greina þarfir, kortleggja áskoranir og meta þróun yfir tíma. Gögnin verði samanburðarhæf á milli ára til að styðja við gagnreynda stefnumótun og faglega nálgun.
Tímaáætlun: 2026.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Íslensk æskulýðsrannsóknin.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Úttekt á líðan hinsegin barna og ungmenna er hluti af reglubundinni Æskulýðsrannsókn. Samantekt verið unnin úr gögnum um börn á grunnskólaaldri.