Samræmdar verklagsreglur lögreglu um hatursglæpi gegn hinsegin fólki
Þróaðar verði samræmdar verklagsreglur innan lögreglunnar um vinnulag og skráningu hatursglæpa gagnvart hinsegin fólki. Verkefnið verði unnið í samstarfi við Samtökin '78, jafnréttisnefnd og þjónustusvið Embættis ríkislögreglustjóra (RLS). Sérstök áhersla verði lögð á greiningu gagna, notkun hugtaka og rétt viðmót í málsmeðferð.
Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja sýnilega, samræmda og réttindamiðaða
meðferð hatursglæpa gagnvart hinsegin fólki.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Embætti ríkislögreglustjóra.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Vinna við aðgerðina er ekki hafin.
Í undirbúningi