Könnun á hinsegin veruleika innan Stjórnarráðsins

Samstarf verði milli forsætisráðuneytis og Samtakanna '78 um framkvæmd könnunar meðal starfsfólks Stjórnarráðsins um upplifun þess af hinseginleikanum.

Markmið aðgerðarinnar verði að safna gögnum sem nýtast munu við gerð stöðumats og valkostagreiningar (grænbók) um þörf á fjölbreytileika- og inngildingarstefnu Stjórnarráðs Íslands.

Tímaáætlun: 2026–2027.

Ábyrgð: Forsætisráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Skrifstofa stjórnskipunar í samvinnu við Samtökin '78 og aðra viðeigandi hagaðila.

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Forsætisráðuneytið vinnur að undirbúningi könnunarinnar. Stefnt er að því að hún verði framkvæmd snemma árs 2027.

Hafið