Skýrari viðmið í kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu Landspítala
Skýrari afmörkun verði á hlutverki Landspítala í veitingu kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu. Unnið verði að skilgreiningu ábyrgðar, verkferla og þjónustuframboðs í samvinnu við fagaðila og notendur þjónustunnar.
Markmið aðgerðarinnar er að tryggja skýrleika í hlutverki og ábyrgð Landspítala gagnvart kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu og bæta þannig yfirsýn, aðgengi og samræmi í þjónustunni.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Landspítali í samvinnu við viðeigandi hagaðila og sérfræðinga.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Vinna við aðgerðina hefur ekki hafist.
Í undirbúningi