Stuðningsáætlanir fyrir hinsegin börn í skólum
Hvatt verði til þess að skólar setji sér stuðningsáætlanir fyrir hinsegin nemendur. Útbúnar verði aðgengilegar leiðbeiningar til að aðlaga að aðstæðum í hverjum skóla fyrir sig. Metið verði innan skóla hvort skipaður verði tengiliður eða bakhjarl/ar til að styðja við starf með hinsegin börnum og sækja þekkingu til sérfræðinga á sviði hinsegin mála.
Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja fagleg viðbrögð við vanlíðan hinsegin barna, stuðla að öruggu og inngildandi námsumhverfi í því skyni að stuðla að góðri skólasókn, námsárangri og líðan hinsegin barna.
Tímaáætlun: 2028–2029.
Ábyrgð: Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Miðstöð menntunar og skólaþjónustu í samstarfi við Samtökin '78.
Kostnaðaráætlun: 6 millj. kr.
Staða aðgerðar:
Vinna við aðgerðina er ekki hafin.