Fræðsla til fjölmiðla

Miðlað verði fræðslu til starfsfólks fjölmiðla um hinsegin málefni. Fræðslan verði þróuð í samstarfi við hagsmunasamtök hinsegin fólks. Fræðsluefnið feli m.a. í sér almenna umfjöllun um málefnasvið hinsegin fólks, viðbrögð við hatursorðræðu gagnvart hinsegin fólki og umfjöllun um íþróttir og íþróttaviðburði með hliðsjón af

hinseginleika. Fræðslan verði valkvæð og standi öllu starfsfólki fjölmiðla til boða. Miðlun fræðslunnar fari fram með aðgengilegum hætti og grundvallarfræðsluefni liggi frammi á miðlægu rafrænu svæði. Samstarf verði haft við Blaðamannafélag Íslands (BÍ) um framkvæmd aðgerðarinnar.

Markmið fræðslunnar verði að stuðla að auknum fjölbreytileika í hópi viðmælenda og umfjöllunarefni fjölmiðla. Þannig endurspegli fjölmiðlar samfélagið með raunsönnum hætti, vinni gegn fordómum og ýti undir þátttöku hinsegin fólks í samfélagslegri umræðu.

Tímaáætlun: 2026–2029.

Ábyrgð: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Skrifstofa nýsköpunar, rannsókna og stafrænna mála í samstarfi við BÍ.

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Vinna við aðgerðina er ekki hafin.

Í undirbúningi