Framkvæmdasjóður hinsegin málefna

Varið verði 40 millj. kr. samtals til aðgerða innan aðgerðaáætlunar í málefnum hinsegin fólks á fjögurra ára gildistíma áætlunarinnar. Niðurstöður einstakra aðgerða, reynsla og þekking nýtist til framfara í málaflokknum.

Dómsmálaráðuneytið auglýsi eftir umsóknum frá ráðuneytum og úthluti 10 millj. kr. árlega á tímabilinu að undangengnu faglegu mati skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála. Reglur sjóðsins og umsóknareyðublöð verði kynnt ráðuneytum við gildistöku áætlunarinnar í upphafi ársins 2026.

Tímaáætlun: 2026–2029.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Skrifstofa jafnréttismála.

Kostnaðaráætlun: 40 millj. kr.

Staða aðgerðar:

Úthlutað var úr framkvæmdasjóðnum í fyrsta skipti í lok mars árið 2026.

Hafið