Skýrari viðmið í þjónustu teymis barna- og unglingageðdeildar Landspítalans um kynvitund

Nýtt verði reglugerðarheimild í 3. mgr. 13. gr. laga um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019, til að setja reglugerð um verkefni og þjónustu teymis barna- og unglingageðdeildar Landspítalans um kynvitund.

Markmið aðgerðarinnar verði að skýra hlutverk teymisins hvað varðar þjónustu við einstaklinga sem falla undir lögin og hvaða sérfræðiþjónustu sé nauðsynlegt og heimilt að veita þeim sem leita eftir þjónustu teymisins.

Tímaáætlun: 2026.

Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Barna- og unglingageðdeild Landspítala í samvinnu við viðeigandi hagaðila og sérfræðinga.

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Heilbrigðisráðuneytið vinnur að undirbúningi við aðgerðina. 

Hafið