Rannsókn á margþættri mismunun gagnvart hinsegin fötluðu fólki

Framkvæmd verði eigindleg rannsókn á margþættri mismunun gagnvart hinsegin fötluðu fólki. Liður í rannsókninni verði mótun tillagna um úrbætur í þágu hinsegin fatlaðs fólks.  
            Meginmarkmið rannsóknarinnar verði að bæta aðstæður hinsegin fatlaðs fólks, m.a. út frá upplýsingaöflun um margþætta mismunun og afleiðingar hennar fyrir þennan hóp.

Tímaáætlun: 2027–2029
Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Skrifstofa félags- og lífeyrismála í samstarfi við skrifstofu jafnréttismála og viðeigandi hagaðila.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Vinna við aðgerðina er ekki hafin

Í undirbúningi