Stuðningur við börn með ódæmigerð kyneinkenni (intersex) og forsjáraðila þeirra
Unnið verði að því að skýra þjónustu við intersex börn og forsjáraðila þeirra. Þróaðar verði verklagsreglur utan um þjónustuþörf þeirra, bæði líffræðilega og sálfélagslega þætti. Tryggð verði viðeigandi ráðgjöf og stuðningur til barna og forsjáraðila þeirra, frá greiningu til fullorðinsára. Einnig fari fram eftirfylgni framkvæmdar Landspítala
vegna ákvæða um intersex í lögum um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019, t.a.m. hvað varðar skráningu meðferðar í sjúkraskrá og veitingu árlegra upplýsinga til embættis landlæknis um fjölda og eðli þeirra meðferða sem veitt er og aldur þeirra barna sem undirgangast þær.
Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja stuðning og þjónustu við intersex börn og forsjáraðila þeirra, allt frá greiningu til fullorðinsára. Einnig að lögum sé fylgt með tilliti til skráningar og tölfræðiupplýsinga um meðferðir intersex barna.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Landspítali í samvinnu við viðeigandi hagaðila og sérfræðinga.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Vinna við aðgerðina hefur ekki hafist.