Hinseginvænt vinnuumhverfi innan lögreglunnar

Unnið verði að greiningu og umbótum á aðgengi, verklagi og menningu innan lögreglunnar til þess að tryggja hinseginvænt vinnuumhverfi. Lögð verði áhersla á aðgengi að kynhlutlausum salernum, virðingu í orðræðu og stuðning við hinsegin starfsfólk. Aðgerðin verði unnin í samvinnu við Samtökin '78 og byggð á lögum um jafna

meðferð.

Markmið aðgerðarinnar verði að stuðla að öryggi, vellíðan og inngildingu hinsegin starfsfólks og tryggja að lögreglan sé vinnustaður þar sem mismunun er ekki liðin.

Tímaáætlun: 2026–2028.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Embætti ríkislögreglustjóra.

Kostnaðaráætlun: Samþætt við fyrirliggjandi aðgerðir um vinnuaðstöðu og fjölbreytileika hjá embættinu.

Staða:

Embætti ríkislögreglustjóra hefur hafið aðgerðina með því að yfirfara mannauðs- og jafnréttisstefnu embættisins með hliðsjón af hinseginvænu vinnuumhverfi. Stefnt er að því að miðla fræðslu um jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu til starfsfólks embættisins á árinu. 

Hafið