Bætt tölfræði um alþjóðlega vernd hinsegin fólks
Haldið verði saman upplýsingum um hversu margir hinsegin umsækjendur um alþjóðlega vernd hljóti vernd á Íslandi og frá hvaða löndum þeir komi upprunalega. Byrjað verði að safna upplýsingunum samhliða því að Útlendingastofnun taki í notkun nýtt upplýsingakerfi á tímabili aðgerðaáætlunarinnar.
Markmið aðgerðarinnar verði að skapa yfirsýn yfir fjölda samþykktra umsókna hinsegin fólks um alþjóðlega vernd og upprunaland þess í því skyni að bæta stefnumótun stjórnvalda og afla upplýsinga um stöðu hinsegin fólks í öðrum löndum.
Tímaáætlun: 2027.
Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Útlendingastofnun.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Útlendingastofnun hefur ýtt úr vör vinnu við nýtt upplýsingatæknikerfi í því skyni að bæta tölfræði. Óvíst er hvenær hægt er að taka kerfið í notkun.