Fræðsla um hinsegin málefni í félagslegri þjónustu

Boðið verði upp á fræðslu um hinsegin málefni fyrir starfsfólk í félagslegri þjónustu. Fræðslan verði aðgengileg og nýtt í fjölbreyttu starfsumhverfi með áherslu á að efla hæfni starfsfólks til að mæta þörfum hinsegin fólks, þ. á m. eldra fólks.

Markmið aðgerðarinnar verði að tryggja að hinsegin fólk, óháð aldri, fái félagslega þjónustu við hæfi án ótta við fordóma og útilokun, njóti reisnar og geti tekið virkan þátt í samfélaginu.

Tímaáætlun: 2026–2029
Ábyrgð: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Skrifstofa félags- og lífeyrismála í samvinnu við helstu hagaðila
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Vinna við aðgerðina er ekki hafin. 

Í undirbúningi