Þróun og miðlun fræðslu til lögreglu í tengslum við hinsegin samfélagið

Útvíkkuð verði fræðsla um hinsegin málefni fyrir lögreglufólk og starfsfólk RLS í samstarfi við Samtökin '78. Jafnframt verði fræðslan felld inn í símenntun lögreglufólks í gegnum Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar og aðlöguð ákveðnum starfseiningum, s.s. Fjarskiptamiðstöð og afbrotavörnum.

Markmið aðgerðarinnar verði að auka þekkingu lögreglufólks á málefnum hinsegin fólks, stuðla að réttindamiðaðri þjónustu og efla traust hinsegin samfélagsins á lögreglunni.

Tímaáætlun: 2026–2029.

Ábyrgð: Dómsmálaráðuneytið.

Framkvæmdaraðili: Embætti ríkislögreglustjóra.

Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.

Staða aðgerðar:

Embætti ríkislögreglustjóra hefur hafið aðgerðina með miðlun stafrænnar fræðslu til lögreglu. Fræðslunni verður fylgt eftir með staðfræðslu í samstarfi við Samtökin 78 seinna á árinu. 

Hafið