Skimanir á legháls- og brjóstakrabbameini nái til transfólks
Gerðar verði breytingar á vinnuferli stofnana sem miða við kynskráningu við boðun í skimun vegna hættu á legháls- og brjóstakrabbameini í því skyni að ná til transfólks.
Markmið aðgerðarinnar er að bæta heilsu transfólks og tryggja að það fái boð í viðeigandi krabbameinsskimanir óháð kynskráningu.
Tímaáætlun: 2026–2027.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneytið.
Framkvæmdaraðili: Landspítali í samvinnu við viðeigandi hagaðila og sérfræðinga.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Staða aðgerðar:
Hafist hefur verið handa við undirbúning aðgerðarinnar.
Hafið