4. Stuðningur við nýsköpun á sviði kolefnisföngunar frá staðbundnum iðnaði

 Aðgerðinni er lokið

 

Staða aðgerðarinnar

Nóvember 2026: Tvö nýsköpunarverkefni hlutu styrk úr Loftslags- og orkusjóði í maí sl. í úthlutun sem miðar að því að hraða þróun tæknilausna sem dregið geta úr losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði innan ETS-kerfisins.

Styrkirnir eru veittir í samræmi við atvinnustefnu stjórnvalda og forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.

Elkem og Carbfix hlutu 200 milljóna króna styrk fyrir þróun kolefnisföngunar og niðurdælingar á Grundartanga og Arctus Aluminum í samstarfi við Norðurál, Eflu, Háskólann í Reykjavík hlaut 160 millljónir fyrir rannsóknarverkefni um kolefnislausa álframleiðslu.

Bæði verkefnin hlutu hæstu einkunn fagráðs Rannís og eru til þriggja ára.

Aðgerðin

Markmið aðgerðarinnar er að hraða samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda frá staðbundnum iðnaði sem fellur undir ETS-kerfi Evrópusambandsins og styrkja samkeppnisstöðu íslensks iðnaðar í orkuskiptum og loftslagsumbreytingu.

Staðbundinn iðnaður stendur frammi fyrir vaxandi kröfum um samdrátt í losun og kolefnishlutleysi, samhliða vaxandi alþjóðlegri samkeppni. Aðgerðin felur í sér markvissan stuðning stjórnvalda við rannsóknir, þróun og innleiðingu tæknilausna til kolefnisföngunar við uppruna losunar. Lögð verður áhersla á samstarf við atvinnulífið, háskólasamfélagið og alþjóðlega aðila til að hraða þróun og prófun slíkra lausna.

Tímarammi: 2027.

Ábyrgðarráðuneyti: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.

Framkvæmdaaðili: Loftslags- og orkusjóður.

Samstarfsaðilar: Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Einföldum regluverk; Eflum vísindi og nýsköpun; Loftslag.

Áætlaður kostnaður: Innan ramma.

Afurð: Afurð aðgerðarinnar verður hagkvæm tækni sem dregur úr losun, nýtist á fleiri sviðum og styrkir samkeppnishæfni íslensks iðnaðar ásamt því að skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar innanlands og á alþjóðavettvangi.

Var efnið hjálplegt?