4. Fjölgun nemenda í iðn- og tækninámi

 Aðgerðin er í vinnslu

 

Staða aðgerðarinnar

Nóvember 2026: Unnið er að nýju reiknilíkani fyrir framhaldsskóla og fjárfestingum í verknámsskólum. Framkvæmdum við FB er að mestu lokið. Gerðir hafa verið samningar við sveitarfélögin þar sem VMA, MÍ, FS og FNV eru staðsett. Sveitarfélögin leiða verkefnin um stækkun skólanna og annast framkvæmd þeirra. Verkefnin miða að því að stækka verknámsaðstöðu til að mæta fjölgun nemenda í iðn- og tækninámi. Undirbúningur að nýjum Tækniskóla, sem hefur verið í farvegi um árabil, er langt kominn. Rætt er við Reykjavíkurborg um lóð undir skólann.

Aðgerðin

Markmið aðgerðarinnar er að fjölga nemendaígildum í iðn- og tækninámi á næstu árum.

Nýr 30.000 m² Tækniskóli verður reistur í Hafnarfirði sem mun stórbæta aðstöðu og efla iðn-, starfs- og tækninám á Íslandi. Reiknilíkan framhaldsskóla verður endurskoðað með það að markmiði að tryggja að námsframboð framhaldsskóla styðji við atvinnustefnu og samfélagsleg markmið, svo sem að fjölga iðn- og tæknimenntuðum, efla nám sem undirbýr nemendur undir STEM-nám á háskólastigi og efla nám í heilbrigðisgreinum á framhaldsskólastigi.  

Samhliða verður fjárfest í uppbyggingu verknámsskóla víðs vegar um landið til að styrkja innviði iðn- og tæknimenntunar og bæta aðstöðu nemenda í nánu samstarfi við viðeigandi sveitarfélög.

Tímarammi: 2026–2027. 

Ábyrgðarráðuneyti: Mennta- og barnamálaráðuneytið. 

Framkvæmdaaðili: Mennta- og barnamálaráðuneytið. 

Samstarfsaðilar: Framhaldsskólar og samtök aðila vinnumarkaðarins. 

Tenging við viðfangsefni og stefnuáherslur atvinnustefnu: Tryggjum færni til framtíðar; Eflum vísindi og nýsköpun.

Áætlaður kostnaður:  500 m.kr. vegna nemendaaukningar.

Afurð: Árlegur fjöldi brautskráðra úr iðn- og tækninámi aukist. Bætt aðstaða verknámsskóla víðs vegar um landið.

Var efnið hjálplegt?