Mál nr. 251/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 251/2026
Fimmtudaginn 9. júlí 2026
A gegn Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 1. apríl 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. mars 2026, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar og að innheimta ofgreiddar bætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. desember 2025 og var umsóknin samþykkt 2. janúar 2026. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. mars 2026, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta hefðu verið stöðvaðar þar sem hún stundaði nám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Kæranda var einnig tilkynnt að henni bæri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að fjárhæð 464.618 kr., án álags.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 1. apríl 2026. Með bréfi, dags. 7. apríl 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. maí 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 11. maí 2026 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. maí 2026. Frekari gögn bárust frá kæranda 27. maí 2026.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að þann 17. nóvember 2025 hafi kærandi sótt um atvinnuleysisbætur frá og með 1. desember 2025. Þann 15. desember 2025 hafi kærandi upplýst Vinnumálastofnun um að hún væri skráð í nám á vorönn 2026 og lagt fram öll viðeigandi gögn, þar á meðal staðfestingu frá skóla um að námið væri samhliða vinnu. Kærandi hafi stundað námið frá haustönn 2023 samhliða skattskyldri vinnu nánast allan tímann og þar með sýnt fram á að námið hindri ekki þátttöku á vinnumarkaði. Kærandi hafi einnig sent gögn frá Menntasjóði sem staðfesti að hún væri ekki lánshæf. Þann 2. janúar 2026 hafi umsókn kæranda verið samþykkt. Þann 6. febrúar 2026 hafi kærandi fengið tilkynningu um ótilkynnt nám, þrátt fyrir að hún hafi þegar upplýst Vinnumálastofnun með fullnægjandi hætti. Kærandi hafi haft samband símleiðis og fengið staðfest frá starfsmanni að námið félli undir undanþágu þar sem það væri samhliða vinnu og að námssamningur hefði verið stofnaður. Kærandi hafi aftur haft samband nokkrum dögum síðar og þá aftur fengið staðfest að námssamningur væri til staðar og að ekki þyrfti að gera frekari ráðstafanir. Í kjölfarið hafi kærandi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið til febrúar 2026. Þann 25. mars 2026 hafi kæranda hins vegar borist ákvörðun um synjun bóta á grundvelli náms, auk endurkröfu. Þar komi fram að námssamningur væri ekki til staðar, sem sé í andstöðu við þær upplýsingar sem kæranda hafi verið veittar af starfsmönnum Vinnumálastofnunar og staðfestingu um samþykktan námssamning inn á „Mínum síðum“.
Kærandi tekur fram að hún hafi upplýst Vinnumálastofnun tímanlega og með fullnægjandi hætti um námið og lagt fram öll umbeðin gögn. Kærandi hafi fengið staðfestingu frá starfsmönnum Vinnumálastofnunar um að námið félli undir undanþágu og að námssamningur hefði verið stofnaður. Kærandi hafi fengið umsókn sína samþykkta og greiddar bættur í samræmi við það. Kærandi hafi því haft réttmætar og verndaðar væntingar um að hún ætti rétt á bótunum og hagað sínum fjármálum í samræmi við það. Kærandi hafi á öllum stigum málsins verið í góðri trú og veitt allar nauðsynlegar upplýsingar. Að sögn kæranda séu vinnubrögð Vinnumálastofnunar óskiljanleg þar sem misvísandi upplýsingar hafi verið veittar og fyrri staðfestingar ekki virtar. Mistök, ef einhver séu, liggi hjá stjórnvöldum en ekki kæranda og því sé óheimilt að gera endurkröfu á hana við þessar aðstæður. Að auki taki kærandi sérstaklega fram að ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi haft veruleg áhrif á hana persónulega. Ákvörðunin hafi valdið kæranda mikilli andlegri streitu og álagi, bæði vegna óvissu um fjárhagslega stöðu hennar og vegna þeirrar kröfu sem sé gerð um endurgreiðslu. Með vísan til framangreinds krefjist kærandi þess að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði felld úr gildi, að endurkrafa verði felld niður í heild sinni og að henni verði greiddar atvinnuleysisbætur fyrir mars 2026 þar sem hún hafi haft réttmætar væntingar um áframhaldandi greiðslur á grundvelli fyrri ákvarðana og upplýsinga frá Vinnumálastofnun.
Í athugasemdum kæranda kemur fram að í greinargerð Vinnumálastofnunar komi fram að í umsókn hennar um atvinnuleysisbætur þann 1. desember 2025 hafi ekki komið fram að hún hafi verið skráð í nám og að hún hafi tekið fram að hún hafi ekki verið í námi á síðustu námsönn. Það sé rétt, enda hafi kærandi þann 1. desember 2026 ekki enn verið skráð í nám á vorönn 2026 og ekki heldur haustönn 2025. Um leið og kærandi hafi fengið staðfestingu og skriflegar upplýsingar um skráningu í nám frá og með 6. janúar 2026 hafi hún upplýst Vinnumálastofnun um það án tafar. Í greinargerðinni segi jafnframt að ekkert skólavottorð hafi borist frá kæranda. Það sé ekki rétt samkvæmt gögnum kæranda þar sem hún hafi í desember sent bæði staðfestingu frá skólanum um námið og gögn frá Menntasjóði námsmanna um að hún væri ekki lánshæf. Kærandi hafi lagt fram þau gögn sem hún hafi talið að óskað hafi verið eftir og upplýst Vinnumálastofnun um aðstæður sínar eftir bestu getu. Kærandi skilji þau lagarök sem Vinnumálastofnun vísi nú til, þ.e. að námið teljist lánshæft samkvæmt reglum Menntasjóðs námsmanna þrátt fyrir að hún sjálf hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir námsláni. Kærandi hafi ekki getað vitað að túlkun Vinnumálastofnunar yrði með þeim hætti, sérstaklega þar sem hún hafi óskað eftir leiðbeiningum um þetta atriði, upplýst um allar aðstæður sínar og fengið þær upplýsingar frá starfsmönnum stofnunarinnar að námið félli undir undanþáguákvæði og að námssamningur hafi verið samþykktur.
Kærandi hafi verið í góðri trú um að hún ætti rétt á atvinnuleysisbótum og byggt ákvarðanir sínar á þeim upplýsingum og ákvörðunum sem henni hafi verið veittar af hálfu stjórnvaldsins. Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi bein áhrif á stöðu hennar og þær ákvarðanir sem hún hafi tekið um framhald dvalar sinnar hér á landi og áframhaldandi náms. Hefði umsókn kæranda verið hafnað strax hefði hún þurft að endurmeta stöðu sína, meðal annars hvort hún ætti að hætta námi eða fara aftur til B til að leita þar að atvinnu og framfærslu. Nú sé sá tími liðinn og ekki unnt að breyta ákvörðunum eftir á. Kærandi leggi áherslu á að endurkrafan setji hana í mjög erfiða fjárhagslega stöðu og raunverulegan tilvistunavanda. Umræddar atvinnuleysisbætur hafi verið nýttar til framfærslu á þeim tíma sem þær hafi verið greiddar og kærandi hafi því ekki fjárhagslegt bolmagn til að endurgreiða fjárhæðina. Kærandi hafi þegið greiðslurnar í góðri trú og hafi ekki haft neina ástæðu til að ætla annað en að réttur hennar hafi verið metinn og samþykktur af Vinnumálastofnun á lögmætan hátt. Með vísan til framangreinds ítreki kærandi að endurkrafa verði felld niður og að við mat á málinu verði tekið fullt tillit til þess að hún hafi verið í góðri trú, þeirra upplýsinga sem hún hafi veitt og þeirra verulegu áhrifa sem málið hafi haft á fjárhagslega og persónulega stöðu hennar.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi verið skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun í lok árs 2024. Þar sem kærandi hafi verið skráð í 26 eininga fjarnám á haustönn 2024 í húsasmíði í C hafi umsókn hennar um atvinnuleysisbætur verið hafnað þann 30. janúar 2025.
Kærandi hafi sótt aftur um greiðslu atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun með umsókn, dags. 1. desember 2025. Á umsókn um atvinnuleysisbætur hafi kærandi sagst ekki vera skráð í nám og að hún hefði ekki verið skráð í nám á síðustu námsönn. Tveimur vikum eftir að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hafi hún haft samband við stofnunina og tilkynnt að hún væri skráð í 28 eininga nám á vorönn 2026. Nám kæranda, sem sé skipulagt sem nám samhliða vinnu, sé sama nám og hún hafi stundað á haustönn 2024. Kærandi hafi upplýst um að hún hefði sótt um námslán en verið synjað. Kærandi hafi spurt hvort hún ætti rétt á atvinnuleysisbótum samhliða náminu. Þrátt fyrir framangreint hafi kæranda með erindi, dags 2. janúar 2026, verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að bótaréttur væri 100%.
Kærandi hafi komið upp í samkeyrslu við menntastofnanir við reglulegt eftirlit Vinnumálastofnunar í febrúar 2026. Kærandi hafi verið skráð í 28 eininga nám við C. Með erindi, dags. 6. febrúar 2026, hafi verið óskað eftir gögnum um nám kæranda.
Þann [9. febrúar] 2026 hafi borist skriflegar skýringar frá kæranda þar sem fram komi að hún væri í fjarnámi sem væri skipulagt samhliða vinnu. Að mati kæranda hefði námið engin áhrif á atvinnu eða atvinnuleit. Ekkert skólavottorð hafi borist frá kæranda.
Þann 9. febrúar 2026 hafi kærandi haft samband við stofnunina og óskað eftir námssamningi vegna umrædds náms. Námssamningur hafi verið gerður við kæranda vegna 28 eininga á vorönn 2026.
Með bréfi, dags 25. mars 2026, hafi kæranda verið sent erindi þar sem námssamningur hafi verið afturkallaður og þar sem skilyrði 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi ekki verið uppfyllt varðandi nám hennar á vorönn 2026 hafi greiðslur verið stöðvaðar. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 5. janúar 2026 til 28. febrúar 2026, samtals 464.618 kr. sem yrðu þær innheimtar án 15% álags samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 1. apríl 2026. Í kæru greini kærandi frá því að nám hennar á vorönn 2026 hafi verið tilkynnt til stofnunarinnar í desember 2025, hún hafi verið í góðri trú allan tímann um réttmæti töku atvinnuleysisbóta. Í kæru til nefndarinnar fari kærandi fram á það að skuld hennar við Vinnumálastofnun verði felld niður og að henni verði greiddar atvinnuleysisbætur samhliða því að hún stundi nám.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Ágreiningur í máli þessu snúi að ofgreiðslu atvinnuleysistrygginga til kæranda á tímabilinu 5. janúar til 28. febrúar 2026 vegna námsþáttöku samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta og hvort hún eigi rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta samhliða námi á vorönn 2026.
Í c. lið 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:
„Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“
Í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé nánar kveðið á um nám. Í 1. mgr. 52. gr. segi orðrétt:
„Hver sá sem stundar nám, sbr. c. lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.“
Ljóst sé af ákvæði 1. mgr. 52. gr. að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum með 52. gr. í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé tiltekið að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem um sé að ræða fjarnám, dag- eða kvöldskóla.
Í 2. til 5. mgr. 52. gr. laganna séu undanþágur frá þeirri meginreglu. Í 2. mgr. komi fram að þrátt fyrir 1. mgr. sé hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemi að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemi að hámarki 12 ECTS einingum á námsönn. Í 3. mgr. komi fram að þrátt fyrir 1. og 2. mgr. sé Vinnumálastofnun heimilt að greiða hinum tryggða skertar atvinnuleysisbætur í samræmi við umfang náms sem nemi allt að 20 einingum á námsönn.
Í 4. mgr. komi fram:
„Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.“
Kærandi hafi verið skráð í 28 eininga nám við C, á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga á vorönn 2026. Þar sem námið sé lánshæft samkvæmt reglum Menntasjóðs námsmanna eigi ákvæðið ekki við þó að kærandi uppfylli persónulega ekki skilyrði um lántöku þar. Þar sem að nám kæranda á vorönn hafi ekki fallið að heimildum 2. til 5. mgr. 52. gr. hafi hún ekki átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta á því tímabili.
Kærandi hafi bent á að hún hafi upplýst stofnunina um nám sitt í desember 2025, hafi fengið samþykktan námssamning og að mistök sem stofnunin geri eigi ekki að bitna á henni.
Fyrir mistök hafi umsókn kæranda verið samþykkt þrátt fyrir að upplýsingar um nám hennar hefðu þegar komið fram. Um sama nám hafi verið að ræða og stofnunin hafi þegar tekið afstöðu til og hafi verið tilefni þess að umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur í byrjun árs 2025 hafi verið hafnað. Í kjölfarið hafi einnig verið gerður námssamningur við kæranda vegna 28 eininga náms.
Stjórnsýslulög nr. 37/1993 mæli fyrir um afturköllun ákvarðana sem ekki séu í samræmi við lög. Í VI. kafla laganna sé fjallað um skilyrði fyrir því að stjórnvöld geti afturkallað ákvarðanir sínar eftir að þær hafi verið birtar. Í 25. gr. laganna segi að stjórnvald geti afturkallað ákvörðun sína að eigin frumkvæði, sem tilkynnt hafi verið aðila máls, þegar það sé ekki til tjóns fyrir aðila eða þegar ákvörðun sé ógildanleg. Þegar ákvarðanir fari gegn skýru lagaboði kunni stjórnvaldi að vera skylt að ógilda ákvörðun sem haldin sé slíkum annmarka. Í stjórnsýslurétti hafi almennt verið gengið út frá því að stjórnvaldsákvörðun sé ógildanleg ef ákvörðun sé haldin annmarka að lögum. Sá annmarki sé verulegur og veigamikil rök mæli ekki gegn ógildingu ákvörðunar.
Í tilfelli kæranda sé ljóst að hún hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur samhliða námi sínu, þvert á skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvörðun stofnunarinnar hafi því verið haldin verulegum efnislegum annmarka sem hafi leitt til rangrar niðurstöðu í máli kæranda.
Í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar taki kærandi fram að hún hafi átt réttmætar og verndaðar væntingar um rétt til bóta og hagað fjármálum sínum í samræmi við það. Kærandi hafi veitt allar nauðsynlegar upplýsingar. Við mat á því hvort afturkalla bæri ákvörðun í máli kæranda hafi verið horft til þess hvort haldbær sjónarmið mæltu gegn því að ógilda ákvörðun stofnunarinnar. Litið hafi verið til þess hvort kærandi hefði réttmætar væntingar og þá hversu lengi ákvörðun hafi fengið að standa.
Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi áður fengið synjun á greiðslum atvinnuleysistrygginga vegna námsþátttöku þegar hún hafi sótt um greiðslur í desember 2024. Það hafi verið vegna sama náms og hún stundi nú í hærra námshlutfalli. Þá liggi fyrir að kærandi hafi ekki upplýst á umsókn sinni um atvinnuleysistryggingar þann 1. desember 2025 að hún hafi verið að stunda umrætt nám. Þær upplýsingar hafi ekki borist stofnuninni fyrr en um miðjan desember 2025 þegar kærandi hafi lagt fram almenna fyrirspurn. Við afgreiðslu umsóknar hafi láðst að yfirfara fyrirspurnir sem hafi verið svarað af þjónustuskrifstofu stofnunarinnar. Umsókn kæranda hafi svo fyrir mistök verið samþykkt án athugasemda í janúar. Um leið og eftirlit stofnunar hafi orðið þess vart að kærandi hefði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í andstöðu við lög um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert viðvart. Vinnumálastofnun harmi þau mistök sem hafi átt sér stað við afgreiðslu máls kæranda en ekki sé fallist á það að mistök stofnunarinnar skuli leiða til þess að hún fái áfram greiddar atvinnuleysisbætur þvert á skilyrði skýrra lagaákvæða. Það hafi því verið niðurstaða stofnunarinnar að afturkalla ákvörðun um samþykkt námssamnings.
Samkvæmt framangreindu hafi kærandi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 5. janúar 2026 til 28. febrúar 2026, samtals 464.618 kr. og verði þær innheimtar án 15% álags samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.
Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Álag á kröfuna sé fellt niður þar sem málavextir séu með þeim hætti sem að framan greini.
Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kæranda beri að endurgreiða atvinnuleysisbætur sem hún hafi fengið ofgreiddar, samtals 464.618 kr. og verði þær innheimtar án 15% álags Þá eigi kærandi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta samhliða námi á vorönn 2026, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi eigi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta á meðan hún stundi nám á vorönn 2026 og að hún skuli endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals 464.618 kr.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. mars 2026, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar bætur með vísan til þess að hún hafi stundað nám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur.
Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:
„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.
Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.
Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingarhlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.
Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.
Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“
Í c. lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:
„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“
Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.
Þegar sótt er um atvinnuleysisbætur er umsækjandi spurður hvort hann sé skráður í nám á umsóknardegi, hvort hann hafi verið skráður í nám á síðustu námsönn eða sé skráður í nám á næstu námsönn. Þá er upplýst að almennt sé ekki heimilt að vera í námi samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Í staðfestingu á móttöku umsóknarinnar var kærandi upplýst um ýmis réttindi og skyldur og jafnframt greint frá því að ítarlegri upplýsingar hvað það varðar væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var skráð í samtals 28 einingar við C á vorönn 2026 en svaraði framangreindum spurningum neitandi á umsókn, dags. 1. desember 2025. Kærandi upplýsti Vinnumálastofnun hins vegar um námið stuttu síðar, eða 15. desember 2025, og áður en umsókn hennar var samþykkt.
Fyrir liggur að Vinnumálastofnun samþykkti umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur þrátt fyrir að kærandi væri námsmaður í skilningi laga nr. 54/2006 og því ekki tryggð samkvæmt lögunum. Úrskurðarnefndin telur ástæðu til að brýna fyrir Vinnumálastofnun að leggja fullnægjandi mat á umsóknir áður en ákvörðun er tekin um hvort einstaklingur uppfylli skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum, enda miklir hagsmunir í húfi fyrir viðkomandi.
Þar sem Vinnumálastofnun samþykkti ranglega umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur fékk hún greiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 5. janúar til 28. febrúar 2026 án þess að eiga rétt til þeirra, sbr. framangreinda meginreglu um að námsmenn séu ekki tryggðir samkvæmt lögum nr. 54/2006.
Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar Fyrir liggur að Vinnumálastofnun hefur ekki lagt álag á endurgreiðslukröfuna og er því ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. mars 2026, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, og að innheimta ofgreiddar bætur, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir