25 júní 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Mál nr. 223/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 223/2026

Fimmtudaginn 25. júní 2026

A gegn Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dagsett sama dag, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 20. desember 2025 og var umsóknin samþykkt 26. janúar 2026. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. mars 2026, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 19. mars 2026. Með bréfi, dags. 23. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. maí 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. maí 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að þetta sé í fyrsta skipti sem að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund. Kærandi hafi misst af fyrri fundi vegna mistaka af hennar hálfu en hún sjái eftir því. Eftir það hafi hún fengið nýtt fundarboð með tveggja daga fyrirvara. Á þeim tíma hafi hún verið hjá fjölskyldu sinni á B sem sé sjö tímum í burtu og hafi því ekki getað mætt þó að hún hafi verið búsett á C síðan í janúar.

Um leið og kærandi hafi séð að hún gæti ekki mætt á fundinn hafi hún sent skilaboð til Vinnumálastofnunar þar sem hún hafi tilkynnt að hún gæti ekki mætt. Kærandi hafi jafnframt spurt hvort það væri möguleiki að taka þátt á fundinum á rafrænu formi, t.d. í gegnum Zoom eða sambærilegt kerfi en hún hafi ekki fengið nein svör. Kærandi taki fram að hún hafi heldur ekki verið upplýst um afleiðingar af því að mæta ekki. Kærandi hafi ekki vitað að sér yrði aðeins boðið tvisvar og að misbrestur á fundi gæti leitt til stöðvunar greiðslna í þrjá mánuði. Hefði kærandi vitað um þessar afleiðingar hefði kærandi gert allt sem hún gæti til að mæta á fundinn, sem hafi verið 40 mínúta fundur, þrátt fyrir að hún hafi verið að heimsækja foreldra sína í viku.

Þetta hafi upphaflega átt sér stað í febrúar en nú hafi stöðu umsóknar hennar verið breytt og nú gildi þriggja mánaða greiðslustöðvun. Kærandi fái því ekkert greitt fyrir mánuðinn sem sé ósanngjarnt að mati kæranda þar sem greiðslustöðvunin hafi komið 12 dögum áður en hún hafi átt að fá laun. Kærandi hafi látið vita að hún gæti ekki mætt. Kærandi telji að ástæður hennar hafi verið eðlilegar miðað við aðstæður. Henni finnist óréttlátt að svona ströng ákvörðun hafi verið tekin einungis vegna þess að hún hafi verið í viku að heimsækja fjölskyldu sína og ekki getað mætt á staðinn. Hún hefði þurft að ferðast um 1000 kílómetra til að mæta og snúa svo aftur til fjölskyldunnar. Þriggja mánaða stöðvun greiðslna hafi mikil áhrif á hana þar sem hún hafi enga aðra tekjulind og eigi erfitt með að sjá hvernig hún eigi að framfleyta sér á þessum tíma. Kærandi óski þess að ákvörðunin verði endurskoðuð.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 20. desember 2025. Með erindi, dags. 26. janúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að bótaréttur væri 100%.

Þann 18. febrúar 2026 hafi kærandi verið boðuð á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun þann 20. febrúar 2026, kl. 11:00. Kærandi hafi verið upplýst að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar í gegnum „Mínar síður“ Vinnumálastofnunar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli kæranda verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 18. febrúar 2026, klukkan 14:17.

Fyrir liggi að kærandi sé með skráð lögheimil að D, B en í umsókn sinni um atvinnuleysisbætur hafi hún tilgreint að dvalarstaður hennar væri annar en skráð lögheimili. Dvalarstaður kæranda hafi verið skráður að E, C og að hún væri í atvinnuleit á höfuðborgarsvæðinu.

Þann 19. febrúar 2026 hafi borist skilaboð frá kæranda þar sem hún boðaði forföll á boðaðan kynningarfund sem hafi átt að fara fram daginn eftir þann 20. febrúar 2026. Í skilaboðum kæranda komi fram að hún kæmist ekki á boðaðan fund sökum þess að hún væri stödd á B að heimsækja fjölskyldu sína.

Með erindi, dags. 5. mars 2026, hafi kæranda verið gefinn kostur á að skila frekari skýringum á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund þann 20. febrúar 2026. Kærandi hafi skilað inn skýringum á ástæðum fjarveru sinnar samdægurs, svohljóðandi:

„Ég gat ekki mætt en ég lét samt vita, ég er flutt suður til kærastans og er þá fjölskylda mín stödd fyrir norðan og þá fór ég einmitt norður til að heimsækja þá þegar ég fékk boð á fundinn og gat þá ekki mætt.“

Með erindi, dags. 19. mars 2026, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður greiðslur henni til handa í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. mars 2026, hafi samdægurs verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála. Í kæru bendi kærandi á að hún hafi boðað forföll á boðaðan kynningarfund og í ljósi þess þyki henni ákvörðun Vinnumálastofnunar vera ósanngjarna.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Á meðal skilyrða greiðslu atvinnuleysibóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnra skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hún verið boðuð til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi verið bætt við lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun þann 20. febrúar 2026. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, í farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun á umræddan kynningarfund. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hún hafi ekki mætt til boðaðs kynningarfundar þann 20. febrúar 2026 hafi verið þær að hún hafi verið stödd úti á landi, nánar tiltekið á B í heimsókn hjá fjölskyldu sinni. Kærandi bendi jafnframt á að hún hafi boðað forföll og bent á að hún kæmist ekki á boðaðan kynningarfund.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð á kynningarfund hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum á skráð símanúmer kæranda. Í umræddri boðun hafi verið sérstaklega tilgreint að um skyldumætingu væri að ræða. Kærandi hafi í upphafi umsóknar upplýst með fullnægjandi hætti hvernig henni yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun til umrædds fundar hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. r. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds fundar hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri henni því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr.

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar þann [26. janúar] 2026 hafi umsókn kæranda verið samþykkt með tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta sökum þess að starfslok hennar hafi ekki verið metin gild. Því hafi verið um að ræða niðurfellingu bótaréttar í annað sinn á bótatímabili kæranda. Samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli sá sem sæti viðurlögum eða biðtíma í annað skiptið á sama bótatímabili ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir. Kæranda hafi því borið að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði á grundvelli 58. gr. og 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 18. febrúar 2026 boðuð á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram þann 20. febrúar 2026 í Reykjavík. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að ef upp kæmu forföll bæri að tilkynna þau í gegnum „Mínar síður“. Kærandi var jafnframt upplýst um að ekki væri hægt að fá nýja boðun í viðtal en ástæður forfalla yrðu sendar á Greiðslustofu til skoðunar þar sem tekin yrði afstaða til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Að lokum var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga.

Fyrir liggur að kærandi mætti ekki á boðaðan fund en boðaði forföll með vísan til þess að hún væri stödd út á landi að heimsækja fjölskyldu sína.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 26. janúar 2026 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. mars 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir